fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Hugarafl fékk nýjan samning hjá Ásmundi eftir höfnun frá Svandísi

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 5. desember 2018 20:00

Velferðarráðuneytið Ásmundur Einar ásamt Gissuri Péturssyni, forstjóra Vinnumálastofnunar, Málfríði Hrund Einarsdóttur og Auði Axelsdóttur frá Hugarafli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur fyrir milligöngu Vinnumálastofnunar gert nýjan samning við Hugarafl til tveggja ára um að sinna starfsendurhæfingu fyrir einstaklinga með geðraskanir sem þurfa öflugt utanumhald og eftirfylgd. Sérstök áhersla verður lögð á ungt fólk sem uppfyllir ekki skilyrði fyrir þjónustu lokaðra endurhæfingarúrræða.

Er þetta mikill viðsnúningur sem teljast verður ánægjulegur fyrir Hugarafl, því í lok maí sendi Hugarafl frá sér tilkynningu sem nefnt var neyðarkall til ríkisstjórnarinnar, þar sem útlit var fyrir að samtökin myndu ekki lifa af, þar sem fjármagn til þeirra var skorið niður af Heilsugæslu Reykjavíkur. Sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, við það tækifæri að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra væri að „eyðileggja“ Hugarafl.

Velferðarráðuneytið sendi frá sér tilkynningu í kjölfarið þar sem boðuð var stórsókn í geðheilbrigðisþjónustu á landsvísu og fullyrt að þó svo að teymið Geðheilsu-eftirfylgd, sem starfað hafði með Hugarafli í gegnum heilsugæsluna, yrði lagt niður, myndi það ekki leiða til þjónustuskerðingar. Þeir sem sótt hefðu þjónustu sína þangað, fengu áfram þjónustu „í samræmi við þarfir hvers og eins.“

Sjá nánarInga Sæland um Svandísi Svavars:„Ætlar að eyðileggja Hugarafl með öllu“

Sjá einnig: Neyðarkall Hugarafls til ríkisstjórnarinnar

Fá 47 milljónir á ári

Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar og Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls, undirrituðu nýjan samning í dag að viðstöddum félags- og jafnréttismálaráðherra sem sagði samninginn fagnaðarefni:

„Það er mikil þörf fyrir þessa þjónustu eins og þegar hefur sýnt sig með fyrri samningi Vinnumálastofnunar og Hugarafls. Hugarafl nýtur mikils stuðnings víða í samfélaginu og því gleðilegt að geta aukið við þessa þjónustu með nýjum samningi“

sagði Ásmundur Einar.

Í tilkynningu segir:

„Samkvæmt samningnum mun þjónustan einnig standa til boða þeim sem hafa takmörkuð atvinnutækifæri eða standa höllum fæti á vinnumarkaði vegna skorts á grunnmenntun eða annarri hæfni og leita til Hugarafls af sjálfsdáðum.

Gert er ráð fyrir að í hverjum mánuði njóti 41 einstaklingur starfsendurhæfingar hjá Hugarafli að jafnaði. Á hverjum tíma er miðað við að hægt sé að bregðast við og veita þjónustu allt að sextán einstaklingum í bráðum vanda.

Áhersla verður lögð á einstaklingsbundin úrræði sem miðast við að auka starfsgetu fólks og gera því kleift að fara aftur inn á vinnumarkaðinn. Í því felst meðal annars að undirbúa viðkomandi fyrir vinnu, greina atvinnutækifæri hans, aðstoða við atvinnuleit og atvinnuumsóknir, auk tímabundinnar aðstoðar á vinnustað ef með þarf.

Þjónustan skal miða að því að hvetja þátttakendur til aukinnar sjálfseflingar og virkni og lífsgæða og stuðla að því að þeir fái notið sín sem fullgildir þegnar samfélagsins á forsendum eigin getu og styrkleika.

Málfríður Hrund Einarsdóttir, formaður Hugarafls, sagðist við undirritun samkomulagsins í dag fagna þessum tímamótum og vera þakklát þeim sem hefðu gert þennan samning mögulegan: „Með þessu skrefi getur almenningur haldið áfram að leita sér þjónustu án hindranna og einstaklingar sótt sér endurhæfingu á eigin forsendum á leið sinni til bata.“

Samningsfjárhæðin nemur samtals 47.000.000 á ári á samningstímanum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus