Í fréttaskýringaþættinum Kveik í kvöld var fjallað um verkalýðsmálin og komandi kjaradeilur. Fyrir svörum sátu Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, Drífa Snædal, forseti ASÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Það kom ýmislegt fróðlegt fram þarna, flest hefur þó heyrst áður. Sólveig Anna talaði um stéttabaráttu, Drífa talaði um nauðsyn á aðkomu ríkisins en Ragnar talaði meðal annars um lífeyrissjóði.
Eitt í málflutningi hans vakti sérstaka athygli. Ragnar veltir fyrir sér hvort verkalýðsfélögin geti beitt lífeyrissjóðunum í kjarabaráttunni – með því beinlínis að setja þá í verkfall?
„Við erum líka aðilar að íslenska lífeyrissjóðakerfinu. Við erum að borga hátt í 20 milljarða á ári í umsýslukostnað inn í fjármálakerfið. Og af hverju getum við ekki sett fjármálakerfið okkar í verkfall? Af hverju getum við ekki beitt áhrifum okkar inni í lífeyrissjóðakerfinu, sem að, beinum þá tilmælum til okkar stjórnarmanna að skrúfa fyrir allar fjárfestingar á meðan óvissa eða samningar eru lausir?“
Hrafn Magnússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri Landsambands lífeyrissjóða, er ekki hrifinn af þessum orðum Ragnars og skrifar á Facebook.
„Þessi ummæli Ragnars finnst mér með ólíkindum og reyndar út í hött. Að skrúfa fyrir allar fjárfestingar lífeyrissjóðanna er auk þess brot á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Látum lífeyrissparnað fólks í friði.“
Í sama streng tekur Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambandsins. Hann telur að sumt sem Ragnar segir um lífeyrissjóðina gangi þvert á löggjöf um starfsemi þeirra.