Tillögu Egils Þórs Jónssonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um að auka fjárveitingar til SÁÁ um 140 milljónir króna vegna skorts á stuðningi og úrræðum við ákveðna hópa með fíknivanda var vísað frá á fundi borgarstjórnar í gærkvöldi. Lagt var upp með að fjármagna tillöguna með niðurskurði í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar upp á 2,4% en áætlaður rekstrarkostnaður við miðlæga stjórnsýslu Reykjavíkurborgar nemur rúmum 5,8 milljörðum íslenskra króna fyrir árið 2019.
Tillagan felur m.a. í sér:
Egill segir það sorglegt að ekki sé vilji hjá meirihlutanum í Reykjavík að auka við félagslegan stuðning við einstaklinga og fjölskyldur sem eru að glíma við fíknivanda.
„Það gríðarleg vonbrigði að tillögunni hafi verið vísað frá enda ávinningurinn sem felst í samstarfi við SÁÁ augljós. Margar fjölskyldur og einstaklingar eru í mjög erfiðri stöðu og upplifa oft skilnings- og úrræðaleysi þegar kemur að áfengis og vímuefnavanda. Þess vegna lagði ég m.a. til að stórefla forvarnir og markvissan stuðning við aðstandendur.“
Egill segir enn fremur enga markvissa stefnu til hjá Reykjavíkurborg að koma fólki aftur út í lífið ef það misstígur sig:
„Hættan er sú að fólk festist í viðjum félagslega kerfisins um ókomna tíð.“
Egill segir ávinninginn ekki eingöngu samfélagslegan heldur einnig fjárhagslegan.
„Gríðarlegur samfélagslegur ávinningur er að fólk haldi virkni í samfélaginu en sá ávinningur er oft á tíðum vanmetin. Meðal þess sem kemur fram í meistararitgerð Ara Matthíassonar frá árinu 2010 um þjóðhagslega byrgði áfengis- og vímuefnanotkunar er að þjóðhagslegur kostnaður vegna þessa vanda sé 46-49 milljarðar króna á verðlagi ársins 2008,“ segir Egill og bætir við: „Ef þær fjárhæðir eru færðar yfir á verðlag dagsins í dag eru þetta í kringum 75 – 80 milljarðar. Þannig ætti fjárhagslegur ávinningur að vera hverjum manni augljós.“