fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

„Tal um kynferðislega áreitni af minni hálfu á ekki við rök að styðjast“

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 20. nóvember 2018 06:33

Bjarni Már og Einar Bárðarson voru í eldlínunni í umræðunni um málefni OR.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) kynnti í gær skýrslu sem var unnin um þau mál sem upp komu hjá fyrirtækinu í haust í framhaldi af uppsögn Áslaugar Einarsdóttur. Þá var Bjarna Má Júlíussyni, forstjóra Orku náttúrunnar vikið úr starfi þar sem hann var sagður hafa áreitt samstarfsfólk sitt kynferðislega með ýmsum ummælum. Málið hófst með skrifum Einars Bárðarsonar um brottrekstur Áslaugar en hún er eiginkona hans.

Bjarni skrifar grein í Fréttablaðið í dag þar sem hann fer yfir málið. Þar segist hann telja sig hafa unnið sér inn gott orðspor í störfum sínum hjá stærstu orkufyrirtækjum landsins á undanförnum 28 árum. Það hafi hins vegar skaðað orðspor hans þegar honum var fyrirvaralaust sagt upp störfum sem framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar. Hann hafi ekki fengið tækifæri til að standa fyrir máli sínu.

„Óvíst er hvort hægt verður að vinda ofan af ásökunum í minn garð, sem dreift hefur verið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Ummæli slitin úr samhengi Það var ömurleg reynsla fyrir mig, fjölskyldu mína og nána vini að fylgjast með hvernig vegið var að mannorði mínu með vandlega útfærðum spuna, sem dreift var á rétta staði til að ná sem mestri fylgni við einhliða og óstaðfesta frásögn af ástæðum uppsagnar tiltekins starfsmanns hjá ON. Ólíkt uppsögn minni var þessi uppsögn ekki skyndiákvörðun í kjölfar skrifa á samfélagsmiðlum, heldur byggði hún á faglegu mati. Niðurstaða í úttekt Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar er að uppsögn starfsmannsins telst réttmæt. Til að breiða yfir raunverulega ástæðu uppsagnarinnar, var búin til frásögn á samfélagsmiðlum, þar sem ummæli og atburðir voru slitin úr samhengi eða uppskálduð.“

Segir Bjarni og bætir við að hann tali yfirleitt hreint út um það sem honum býr í brjósti og eflaust mætti hann stundum orðað hlutina á nærgætnari hátt. Hann víkur síðan að samskiptum fólks á vinnustöðum:

„Upplifun fólks af aðstæðum er misjöfn og það sem einum finnst í lagi að segja í samskiptum á vinnustað, getur annar tekið illa upp. Talsmáti og samskipti sem áður þóttu í lagi á karllægum vinnustöðum teljast ekki boðleg í dag. Þetta þurfa ég og aðrir karlar að læra að tileinka okkur á nýjum tímum og það hef ég leitast við að gera.“

Tal um kynferðislega áreitni á ekki við rök að styðjast

„Rannsókn Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar sýnir að tal um kynferðislega áreitni af minni hálfu á ekki við rök að styðjast og þau sem ég vann nánast með bera mér ekki illa söguna. Það er mér léttir að samkvæmt úttektinni upplifði enginn starfsmaður að henni eða honum hafi staðið ógn af framkomu minni.“

Segir Bjarni og víkur því næst að því sem hann segir vera gagnrýnislítið samspil samfélagsmiðla og fjölmiðla.

„Í ljósi atburðarásar, sem í þessu tilfelli kom fyrirmyndar stórfyrirtæki í uppnám, tel ég að fyrirtæki þurfi að bæta óhróðri á samfélags miðlum inn í áhættustjórnun sína. Viðbrögð við öðrum hættum eru kortlögð og æfð og má sem dæmi nefna viðbrögð við eldi sem kom upp í Hellisheiðarvirkjun í janúar síðastliðnum en þar tókst að koma í veg fyrir stórtjón vegna þess að hættan var fyrirséð og búið að æfa viðbrögð við henni. Ég tel ólíklegt að íslensk fyrirtæki eða stofnanir hafi yfirleitt gert viðbragðsáætlanir til að undirbúa viðbrögð við árás á orðspor þeirra eða starfsmanna þeirra frá aðilum sem telja sig eiga harma að hefna. Í gagnrýnislitlu samspili samfélagmiðla og fjölmiðla er auðvelt að dreifa sögum sem þykja líklegar til að ná athygli lesenda, án þess að haft sé fyrir því að kanna sannleiksgildi þeirra. Því tel ég fulla ástæðu til að huga að þessari hættu.“

Að lokum segist Bjarni vonast til að með niðurstöðum úttektarinnar linni þeim atlögum sem hafa verið gerðar að mannorði hans.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG