Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe hefur tryggst sér meirihlutaeign í eignarhaldsfélaginu Grænaþing með því að kaupa 52,67% hlut Jóhanns Kristinssonar fjárfestis. Fréttablaðið greinir frá því í dag að áður átti Ratcliffe 34% í félaginu og á því um um 89% í félaginu í dag. Grænaþing á fjölda jarða í Vopnafirði ásamt veiðifélagið Streng ehf sem leigir meðal annars Selá og Hofsá í firðinum.
Kaupverð er ekki gefið upp ásamt því að ekki er vitað nákvæmlega að svo stöddu hversu margar jarðir eignarhaldsfélagið Grænaþing á, svo fjöldi jarða sem Ratcliffe á hér á landi eftir kaupin er ekki vitað.
Fréttablaðið greinir einnig frá því að jarðeigendur í Vopnafirði hafi lýst því hvernig Ratcliffe hefur reynt að kaupa jarðir á svæðinu og hafi það framkallað deilur innan fjölskyldna um hvort selja eigi jarðirnar eða ekki. Oftar en ekki hafi lögfræðiskrifstofur eða fasteignasölur sent eigendum jarða kauptilboð frá ónefndum erlendum aðila.