fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Samkomulag við millilandaráð Viðskiptaráðs undirritað

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 8. nóvember 2018 21:00

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Baldvin Björn Haraldsson, formaður stjórnar millilandaráðanna og Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir, framkvæmdastjóri millilandaráðanna skrifa undir samkomulagið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra undirritaði í dag samkomulag við alþjóðlegu viðskiptaráðin, sem starfa innan vébanda Viðskiptaráðs Íslands, um að efla áralangt samstarf þessara aðila á sviði utanríkisviðskipta. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Alþjóðlegu viðskiptaráðin eru Amerísk-íslenska, Bresk-íslenska, Dansk-íslenska, Fransk-íslenska, Færeysk-íslenska, Grænlensk-íslenska, Ítalsk-íslenska, Japansk-íslenska, Norsk-íslenska, Spænsk-íslenska, Sænsk-íslenska, Þýsk-íslenska og Norðurslóðaviðskiptaráðið.

„Frá því að ég tók við embætti utanríkisráðherra hef ég lagt sérstaka áherslu á að efla utanríkisviðskipti og þetta samkomulag er mér því mikið fagnaðarefni. Ég er ekki í vafa um að nánara samstarf utanríkisráðuneytisins og millilandaráðanna eigi eftir að verða íslensku atvinnulífi til verulegra hagsbóta,“

sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra að undirritun lokinni.

Markmiðin með samkomulaginu eru meðal annars að vinna sameiginlega að hagsmunum atvinnulífsins, svo og að viðskiptasendinefndum, á ofangreindum mörkuðum, að nýskipaðir sendiherrar eigi fund með stjórn viðkomandi millilandaráðs áður en starf hefst á erlendri grundu og eigi svo saman árlegan fund eftir það. Þá er stefnt að því að ráðherra eigi árlegan fund með formönnum allra millilandaráðanna og unnið verði sameiginlega að árlegri ráðstefnu þar sem athygli er vakin á alþjóðlegum málefnum.

„Það er fagnaðarefni að við formgerum loks það samstarf sem við höfum átt við utanríkisráðuneytið til fjölda ára með þessum samningi. Innan stjórna millilandaráðanna starfa yfir 130 forsvarsaðilar í fyrirtækjarekstri víðsvegar um heiminn með það að markmiði að rækta og efla milliríkjaviðskipti landsins,“

segir Baldvin Björn Haraldsson, formaður stjórnar millilandaráðanna.

„Alþjóðaviðskipti og efling þeirra er hagsmunamál okkar allra en 13 alþjóðleg viðskiptaráð starfa innan vébanda Viðskiptaráðs Íslands og erum við stolt af aðkomu okkar og stuðningi í þessu samhengi,“

segir Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Aðilar samkomulagsins stefna ennfremur að því að efla enn frekar samskipti og samvinnu sín á milli á markaðssvæði hvers millilandaráðs, auk þess að eiga í heildarsamstarfi eins og að ofan greinir, allt með það að leiðarljósi að auka útflutningsviðskipti Íslands og gjaldeyrisöflun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?