fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Jónas ætlar ekki að halda félagsfund: „Félagið verður ekki yfirtekið með baktjaldamakki og áhlaupi utanaðkomandi fólks“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 5. nóvember 2018 15:58

Jónas Garðarson DV hefur ítrekað reynt að ná tali af formanninum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjómannafélag Íslands hefur gefið út að ekki verði boðað til félagsfundar, líkt og krafist var með undirskriftasöfnun. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu í dag, undirrituð af Jónasi Garðarssyni, formanni.

Þar kemur fram að af þeim 163 undirskriftum sem söfnuðust á listann, hafi aðeins 52 nöfn verið félagsmenn Sjómannafélags Íslands, en í lögum félagsins segir að stjórn þess verði að boða til félagsfundar ef 100 eða fleiri félagsmenn fara fram á slíkt:

„Undirskriftalistinn var sendur til skrifstofu félagsins eftir lokun klukkan fjögur síðastliðinn föstudag. Rúmum sólarhring síðar, eða klukkan tvö að morgni sunnudagsins, sendu aðstandendur söfnunarinnar frá sér harðorð mótmæli vegna þess að félagið hefði ekki kvittað fyrir móttöku listans og brugðist við honum með því að boða til félagsfundar strax þessa sömu helgi. Í fréttum var skýrt frá því að safnast hefðu 163 undirskriftir en samkvæmt lögum félagsins þarf stjórn að boða til félagsfundar ef 100 félagsmenn eða fleiri fara fram á það og tilgreina fundarefni.

Skrifstofa Sjómannafélags Íslands hefur nú borið þessar 163 undirskriftir saman við félagaskrána. Innan við þriðjungur undirskriftanna, eða 52 einstaklingar, eru félagsmenn. Hinir eitt hundrað og ellefu eru það ekki. Í þessum þætti fjölmiðlafarsans er sama innistæðan og í öllum hinum. Farið er fram með stórlega ýktar eða upplognar staðhæfingar sem standast enga skoðun en rata í stórar fyrirsagnir áður en þær missa flugið og fjara út. Bornar hafa verið ærumeiðandi ásakanir á forystu Sjómannafélags Íslands um klíkuskap, klæki og fantaskap; ólöglegar lagabreytingar, fölsun fundargerða og að slíta blaðsíður úr fundargerðabók. Ávirðingar Heiðveigar Maríu hafa komið í veg fyrir löngu tímabæra sameiningu sjómanna sem hún hefur kallað „klikkaðar tilraunir“.

Upplognar sakir Heiðveigar

Þá er fullyrt í tilkynningu SÍ að brottvikning Heiðveigar Maríu Einarsdóttur hafi farið fram með lögmætum hætti og að félagið verði ekki „yfirtekið með baktjaldamakki og áhlaupi utanaðkomandi fólks“:

„Heiðveig María Einarsdóttir hefur að undanförnu gagnrýnt forystu Sjómannafélags Íslands afar harkalega í fjölmiðlum. Hún hefur ítrekað borið fram upplognar sakir á forystu félagsins og skaðað það með vísvitandi og því miður áþreifanlegum hætti. Þess vegna var tekin ákvörðun um að vísa henni úr félaginu. Það skal áréttað að í mati á kjörgengi hennar til framboðs til stjórnarformennsku og brottvikningu úr félaginu hefur í einu og öllu verið farið að lögum og reglum félagsins.“ /

„Það verður ekki boðað til félagsfundar í Sjómannafélagi Íslands á grundvelli þessara undirskrifta. Hins vegar verður trúnaðarmannaráð félagsins sem tók ákvörðun um brottvikningu Heiðveigar Maríu kallað saman fljótlega. Um kjörgengi í stjórnarkosningum þarf hins vegar ekki að ræða. Brottvikningin skiptir engu máli hvað það varðar. Þar eru lög félagsins um hið minnsta þriggja ára félagsaðild afar skýr. Félagið verður ekki yfirtekið með baktjaldamakki og áhlaupi utanaðkomandi fólks.“

 

Tilkynningin í heild sinni

Efnt var til undirskriftasöfnunar vegna áskorunar um að haldinn yrði félagsfundur. Undirskriftalistinn var sendur til skrifstofu félagsins eftir lokun klukkan fjögur síðastliðinn föstudag. Rúmum sólarhring síðar, eða klukkan tvö að morgni sunnudagsins, sendu aðstandendur söfnunarinnar frá sér harðorð mótmæli vegna þess að félagið hefði ekki kvittað fyrir móttöku listans og brugðist við honum með því að boða til félagsfundar strax þessa sömu helgi. Í fréttum var skýrt frá því að safnast hefðu 163 undirskriftir en samkvæmt lögum félagsins þarf stjórn að boða til félagsfundar ef 100 félagsmenn eða fleiri fara fram á það og tilgreina fundarefni.

 

Skrifstofa Sjómannafélags Íslands hefur nú borið þessar 163 undirskriftir saman við félagaskrána. Innan við þriðjungur undirskriftanna, eða 52 einstaklingar, eru félagsmenn. Hinir eitt hundrað og ellefu eru það ekki. Í þessum þætti fjölmiðlafarsans er sama innistæðan og í öllum hinum. Farið er fram með stórlega ýktar eða upplognar staðhæfingar sem standast enga skoðun en rata í stórar fyrirsagnir áður en þær missa flugið og fjara út. Bornar hafa verið ærumeiðandi ásakanir á forystu Sjómannafélags Íslands um klíkuskap, klæki og fantaskap; ólöglegar lagabreytingar, fölsun fundargerða og að slíta blaðsíður úr fundargerðabók. Ávirðingar Heiðveigar Maríu hafa komið í veg fyrir löngu tímabæra sameiningu sjómanna sem hún hefur kallað „klikkaðar tilraunir“.

 

Það verður ekki boðað til félagsfundar í Sjómannafélagi Íslands á grundvelli þessara undirskrifta. Hins vegar verður trúnaðarmannaráð félagsins sem tók ákvörðun um brottvikningu Heiðveigar Maríu kallað saman fljótlega. Um kjörgengi í stjórnarkosningum þarf hins vegar ekki að ræða. Brottvikningin skiptir engu máli hvað það varðar. Þar eru lög félagsins um hið minnsta þriggja ára félagsaðild afar skýr. Félagið verður ekki yfirtekið með baktjaldamakki og áhlaupi utanaðkomandi fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna