fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Framsóknarmenn allra flokka hafa komið í veg fyrir lægra matvöruverð hér á landi

Kristján Kristjánsson
Laugardaginn 13. október 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hæstiréttur dæmdi nýlega íslenska ríkið til að greiða Ferskum kjötvörum bætur vegna þess að fyrirtækinu var bannað að flytja inn ferskt hrátt kjöt. Ríkið hafði lagt ýmsar kvaðir á innflutninginn til að koma í veg fyrir hann og krafðist þess meðal annars að kjötið yrði fryst áður en það fengist flutt inn. Ríkið þarf að greiða fyrirtækinu 300 þúsund krónur í bætur vegna þessa en Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að aðildarríki EFTA-samningsins gætu ekki sett eigin reglur um innflutning sem þennan og er sú niðurstaða í samræmi við ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins.

Þetta mál er tilefni pistils sem Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, ritar í helgarblað Morgunblaðsins. Þar segir hann að sagan kenni okkur að flestir stjórnmálamenn vilji vernda sérhagsmunahópa og berjast gegn frelsi fyrir alla. Dæmi um þetta séu innflutningshöft og verndartollar sem eiga að vernda innlenda framleiðslu fyrir erlendri samkeppni.

„Kosturinn við samkeppnina er einmitt að hún hvetur fyrirtæki til þess að selja betri vörur og þjónustu en aðrir á sem hagstæðustu verði fyrir neytendur. Þegar stjórnmálamenn berjast gegn innflutningi á erlendum vörum birtast þeir oft sem sauðir í sauðargærum og flytja fagurgala um að þeir séu að vernda saklausan almenning fyrir hinum hræðilegu útlendingum.“

Hann segir að fyrrgreindur dómur Hæstaréttar sé fagnaðarefni en hann hafnar skorðum sem voru settar við innflutning á hráu kjöti, ógerilsneyddri mjólk og ógerilsneyddum eggjum þegar matvælalöggjöf ESB var innleidd 2009. Þetta sé enn eitt dæmið um að framsóknarmenn í öllum flokkum hafi komið í veg fyrir lægra matvöruverð.

„Á þeim tíma sat ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar. Málið er enn eitt dæmið um að framsóknarmenn í öllum flokkum hafa komið í veg fyrir að íslenskur almenningur fengi að njóta sama matvöruverðs og nágrannar okkar.“

Segir Benedikt og segir að í dag sé hjákátlegt að menn, sem hafa dvalið langdvölum í námi erlendis eða verið skemmtikraftar á Klörubar á Spáni, séu hræddir við útlendan mat. Það hafi kannski verið skiljanlegt áður fyrr þegar fáir höfðu farið út fyrir landsteinana.

„Fyrrverandi forsætisráðherra miðlaði landslýð fyrir nokkrum árum af víðtækri þekkingu sinni á bogfrymli sem hann sagði menn velta fyrir sér hvort breytti „hegðun heilu þjóðanna. Þetta hljómar eins og vísindaskáldsaga. Þetta er mjög algengt, ekki síst í Belgíu“.“

Segir Benedikt og bendir á að Evrópureglugerðirnar eigi rætur að rekja til Brussel í Belgíu.

„Í fréttatilkynningu frá Bændasamtökum Íslands segir að þau hafi „stutt stjórnvöld eftir megni í málsvörninni“. Hér er hlutunum reyndar snúið við því að mótstaða stjórnvalda er einmitt stuðningur við Bændasamtökin. Í sömu frétt segir: „Bændasamtök Íslands munu ekki láta hér staðar numið og heita á alla málsmetandi að veita því liðsinni áfram.“ Inntak þeirrar baráttu verður að koma í veg fyrir að dómnum verði framfylgt. Og þar á ekki að beita neinum vettlingatökum.“

Segir Benedikt og víkur síðan að „málsmetandi“ framsóknarmönnum í lokaorðum sínum:

„Einn vildarvinur Bændasamtakanna á Alþingi hefur þegar svarað kallinu og segir: „Ef það er svo að EES-samningurinn ógnar matvælaframleiðslu og fæðuöryggi þjóðarinnar ber okkur að skoða hvort það sé þess virði að halda í samninginn.“ Enginn gjörningur hefur bætt lífskjör almennings jafnmikið og inngangan í EES. Honum vilja „málsmetandi“ framsóknarmenn nú fórna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus