fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Karl Th. um Gunnar Smára: „Virðist hann skulda félögum sínum þokkalegar skýringar á þessu ójafnvægi og já, furðulegum dónaskap“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 11. október 2018 11:30

Karl Th. Birgisson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karl Th. Birgisson, ritstjóri Herðubreiðar, fjallar um illindin milli Gunnars Smára Egilssonar, stofnanda Sósíalistaflokksins og Kristjönu Valgeirsdóttur, gjaldkera Eflingar-stéttarfélags, sem DV og Eyjan hafa fjallað um að undanförnu.

Óhætt er að segja að þau eldi saman grátt silfur þessa dagana, en lögmaður Kristjönu segir tilefni til að stefna Gunnari Smára fyrir meiðyrði vegna tilhæfulausra ásakana hans í garð skjólstæðings síns.

Dreifarinn

Pistill Karls ber heitið „Dreifarinn“ og þar segir:

„Um mann nokkurn var sagt að hann færi um og segði mönnum almælt tíðindi, og þægi mat fyrir. Ekki ætla ég að nota þau orð um Gunnar Smára Egilsson, en hann fer þó um og dreifir ýmsu.“

Þá útskýrir Karl framvinduna í stuttu máli:

„Við höfum nú í nokkra daga fylgzt með svolítið undarlegum fréttum af Eflingu og meintum átökum á skrifstofu hennar. Þær hófust með skrifum Agnesar Bragadóttur í Morgunblaðið (já, henni er ennþá leyft að vera nálægt tölvu) um vondan anda og leiðindi sem hefðu fylgt nýja formanninum, Sólveigu Önnu Jónsdóttur, og framkvæmdastjóranum, Viðari Þorsteinssyni. Ekki vitum við vel hvað hæft er í því, en þar var líka fullyrt að veikindaleyfi fjármálastjórans, Kristjönu Valgeirsdóttur, mætti rekja til þess að hún neitaði að greiða reikning frá eiginkonu Gunnars Smára án þess að stjórn félagsins samþykkti greiðsluna fyrst. Upp frá þessu hefur staðið fúkyrðastrókurinn upp úr Gunnari Smára í garð þessarar Kristjönu og nú síðast yfir lögmann hennar, Láru V. Júlíusdóttur. Þetta er með nokkrum ólíkindum, og er þá varlega orðað.“

Eitthvað undarlegt á seyði

Karl víkur að viðbrögðum formanns Eflingar, sem hafnar því að Kristjana fjármálastjóri hafi neitað að greiða reikningana:

„Sko. Það er skiljanlegt að Gunnar Smári reiðist fyrir hönd eiginkonu sinnar. Alda Lóa Leifsdóttir er frábær ljósmyndari og á vitaskuld að fá greitt fyrir vinnu sína, og það er algerlega óþolandi ef eitthvert möppudýr hjá Eflingu kemur í veg fyrir það. En hér er eitthvað undarlegt á seyði. Sólveig Anna formaður og Viðar framkvæmdastjóri sendu nefnilega frá sér yfirlýsingu. Hún er á vef félagsins, svo að ekki er Mogginn að ljúga því sem þar stendur meðal annars orðrétt:

„Hvorki formaður né framkvæmdastjóri Eflingar kannast við þá fullyrðingu blaðamanns Morgunblaðsins að fjármálastjóri hafi neitað að greiða reikninga frá Öldu Lóu Leifsdóttur blaðamanni sökum þess að þeir hafi ekki verið samþykktir af stjórn.“

Það er nú svo. Kristjana neitaði semsagt ekkert að borga reikningana?“

Vanstillt viðbrögð

Karl veltir fyrir sér viðbrögðum Gunnars Smára vegna þessa máls, sem hann segir vanstillt:

„Hvað þá? Hvaðan í himninum kemur Gunnari Smára þessi ótrúlega vanstilling í garð Kristjönu? Vanstilling er meiraðsegja vitlaust orð, því að persónuleg heift og hatur lýsa betur því sem þar á sér stað. Gunnar Smári segir hana lygna, ómerkilega og illgjarna, og hann gaf meiraðsegja ríflega í skyn að hún hefði „stungið inn á sig“ fé. Það heitir að þjófkenna fólk.

Eftir að Lára V. Júlíusdóttir lögmaður sendi frá sér yfirlýsingu í dag, sem er furðu yfirveguð miðað við það sem Gunnar Smári hefur látið frá sér, hefur hann ekki borið til baka eitt atriði efnislega. En segir Láru náttúrlega vera „blóðþyrsta“ og svo framvegis eftir ritúalinu.

Hvað gengur eiginlega á? Fjármálastjórinn neitaði hreint ekkert að borga reikninga, segja formaðurinn og framkvæmdastjórinn, en eiginmaðurinn hleypur um eins og rasandi sauðnaut með bölvi og formælingum. Satt að segja virðist hann skulda félögum sínum þokkalegar skýringar á þessu ójafnvægi og já, furðulegum dónaskap. Í það minnsta áður en hann dreifir einhverju fleiru af sömu ætt.“

 

Sjá einnig: Lögmaður Kristjönu:Tilefni til að stefna Gunnari Smára fyrir meiðyrði – Tilhæfulausar ásakanir og aðför að mannorði

Sjá einnig:Gjaldkeri Eflingar sendur í veikindaleyfi fyrir að neita að greiða eiginkonu Gunnars Smára háan reikning

Sjá einnig:Gunnar Smári svarar umfjöllun Moggans:„Ég er atvinnulaus og fæ hvergi vinnu, ekki einu íhlaupaverkefni“

Sjá einnig:Gunnar Smári sakar fjármálastjóra Eflingar um spillingu – Segir hana hafa beint viðskiptum til sambýlismanns síns

Sjá einnig: Gunnar Smári er fokillur út í Kristjönu – „Ég bið ekki að heilsa henni ef þið rekist á hana“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus