fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Guðmundur segir öryrkja svikna um 24 milljarða: „Þó að við þingmenn og ráðherrar höfum það gott þurfum við ekki að svelta aðra“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 11. október 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, sagði öryrkja svikna um 24 milljarða króna, vegna krónu-á-móti-krónu skerðinga, í umræðum um málefni öryrkja á Alþingi í dag. Hann ræddi einnig um alvarlega stöðu hópsins, þar sem margir glíma við fátækt. Þetta ætti einkum við konur og fór svo hörðum orðum um hugmyndir stjórnvalda um starfsgetumat sem ætti neyða upp á fólk sem skiptimynt fyrir réttlæti.

Ekkert í ísskápnum

„Það getur verið snúið fyrir fatlaðan einstakling að reyna að koma sér fram úr rúmi og fara fram í eldhús til þess að fá sér morgunmat. En til hvers að leggja það erfiði á sig ef ekkert er til í ísskápnum lengur?“

sagði Guðmundur í upphafi ræðu sinnar en hann var málshefjandi í sérstakri umræðu um málefni öryrkja á Alþingi í dag.

Hann benti á að fátækt, svelti, væri ekki bara hjá öryrkjum heldur einnig mörgum eldri borgurum þessa lands, fólki sem ef til vill ætti rétt fyrir húsaleigu.

Brot á stjórnarskrá

„Þessi meðferð á veiku fólki er ekkert annað en klárt brot á stjórnarskrá. Það er stórfurðulegt að engin rauð ljós skuli blikka og ekkert skuli vera gert til þess að koma þessum málum í lag,“ bætti Guðmundur við. Þetta væri brot á stjórnarskrá og staða mála væri þingmönnum og ráðherra til háborinnar skammar. „Þó að við þingmenn og ráðherrar höfum það gott þurfum við ekki að svelta aðra.“

Skerðingar bitna verst á konum

Guðmundur ræddi krónu-á-móti-krónu skerðingu, en Öryrkjabandalag Íslands hefur lengi barist gegn þeirri óréttlátu og ómannúðlegu skerðingu.

„Hvað þýðir króna á móti krónu skerðing? Það þýðir að ef þér eru réttar einhverjar bætur, laun, styrkir, með vinstri hendinni kemur sú hægri og rífur þær allar af þér og meira til. Það þýðir að ef þú átt eign einhvers staðar og færð smátekjur af henni þá eru þær teknar af þér. Hverjir lenda verst í þessu af öryrkjum? Jú, það eru konur. Það er með ólíkindum að þetta skuli vera svona enn í dag. Ég veit ekki hvort þetta er sýn þeirra sem þessi lög settu, en okkur ber að breyta þessu,“

sagði Guðmundur.

Hann vísaði í lögfræðiálit sem stjórn ÖBÍ lét vinna og sagði það sýna svart á hvítu að þetta væri stjórnarskrárbrot.

„Þetta er mismunun. Það dugir ekki fyrir velferðarráðherra eða nokkurn annan í þessari ríkisstjórn að segja að ekki sé um að ræða stjórnarskrárbrot vegna þess að það er búið að leiðrétta þetta hjá öldruðum.“

24 milljarðar teknir

Guðmundur fjallaði einnig um áhrifin af skerðingunni á öryrkja í heild:

„Síðan er annað í þessu dæmi. Það er verið að segja að leggja eigi fram 4 milljarða á næstu áramótum. Þvílíkt örlæti. Þeir gleyma að segja frá því að þeir eru búnir að taka, með því að svíkja öryrkja um krónu á móti krónu skerðingar, 24 milljarða. Þannig að þeir ætla að halda eftir 20 milljörðum og segja: Við látum ykkur fá 4 milljarða; rosalega góðir.“

Öryrkjar neyddir í starfsgetumat

Guðmundur Ingi gagnrýndi vinnbrögð stjórnvalda. Þessi skerðing hefði verið leiðrétt hjá eldri borgurum, en annað ætti við um öryrkja:

„Það er vonlaust að segja, þegar þetta var leiðrétt hjá eldri borgurum, eftir á að öryrkjar fái ekki þá leiðréttingu vegna þess að þeir hafi ekki viljað kyngja starfsgetumatinu, starfsgetumati sem rifist hefur verið um í á annan tug ára. Það gengur ekki upp að setja þetta í samhengi, starfsgetumat kemur krónu á móti krónu skerðingu ekki við og hefur aldrei gert. Það er strikað yfir stjórnarskrána og mannréttindi og mismunun með því einu að segja: Þið viljið ekki kyngja starfsgetumati sem okkur þóknast og þá fáið þið ekki leiðréttingu, þá brjótum við á ykkur, brjótum gegn stjórnarskrá og lögum,“

sagði Guðmundur Ingi og var mikið niðri fyrir.

Hann spurði Ásmund Daða Einarsson, félags- og jafnréttismálaráðherra, hvort hann myndi sjá til þess að krónu-á-móti-krónu skerðingin yfðir afnumin um næstu áramót. Einnig hvort ráðherrann myndi sjá til þess að öryrkjar fái afturvirkar leiðréttingar á krónu á móti krónu skerðingu frá 1. janúar 2017? Svo spurði hann hvort ráðherrann teldi krónu-á-móti-krónu skerðingin væri brot á 65. gr. stjórnarskrárinnar sem bannar mismunun?

Ræðu Guðmundar Inga má finna á vef Alþingis og umræðuna í heild.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga

Lýsa vantrausti á ríkisstjórnina, krefjast þingrofs og nýrra kosninga
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran

Ole Anton Bieltvedt skrifar: ESB er miklu meira en sameiginlegur markaður og evran
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið

Sögusagnir sem borgin vísaði á bug eiga sér meiri stoð í raunveruleikanum en af er látið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG

Orðið á götunni: Fylgið minnkað um helming – 40 þúsund vantreysta Bjarna sem sætir afarkostum VG