fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Fjölgun erlendra farþega 13,6% í september

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 11. október 2018 14:38

Ætli þessi hafi fengið töskurnar fljótt á flugvellinum?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í september síðastliðnum voru tæplega 232 þúsund talsins samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um 28 þúsund fleiri en í september á síðasta ári.

Fjölgunin nam 13,6% á milli ára sem er álíka og í maí og mun meiri en mælst hefur aðra mánuði ársins.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í september eða ríflega þriðjungur og fjölgaði þeim um 43,7% milli ára.

Af 32 þjóðernum sem talin eru sérstaklega var fjölgun frá 19 löndum. Að Bandaríkjamönnum frátöldum munar mest um Spánverja, Kínverja og Pólverja. Fækkun var frá nokkrum lykilmörkuðum á borð við Bretland, Þýskaland og Frakkland.

Frá áramótum hefur um 1,8 milljón erlendra farþega farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 5,5% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra.

Fjölgun í september

Farþegum í september fjölgar nú um 13,6% milli ára sem er álíka og í fyrra en mun minni fjölgun en árin þar á undan. Fjölgunin í september var að jafnaði 24% milli ára síðastliðin fimm ár mest frá 2015 til 2016 eða 33,9%. Þegar litið er til annarra mánaða ársins þá er um að ræða álíka mikla fjölgun í september og mældist í maímánuði (13,2%) en mun meiri en aðra mánuði ársins.

Bandaríkjamenn ríflega þriðjungur

Á grafinu hér að ofan má sjá tíu fjölmennustu þjóðernin í september. Brottfarir Bandaríkjamanna voru 35,5% af heild en þeir voru 43,7% fleiri í ár en á síðasta ári.

Næstfjölmennastir voru Þjóðverjar eða 7,0% af heild í ár en þeir voru 7,5% færri en árið 2017. Þar á eftir komu Bretar eða 5,8% af heild en þeim fækkaði um 14,3% milli ára. Samanlagt voru 10 fjölmennustu þjóðernin 72,4% af heildarfjölda.

Samsetning farþega hefur breyst verulega síðustu ár, einkum vegna fjölgunar Bandaríkjamanna. Þannig hefur þeim fjölgað úr 15 þúsundi árið 2014 í um 82 þúsund í ár, sem er nærri sexföldun.

Dregið hefur úr fjölgun

Sé tímabilið frá áramótum skoðað (janúar-september) í samanburði við sama tímabil nokkur ár aftur í tímann má glögglega sjá að dregið hefur verulega úr þeirri fjölgun sem verið hefur síðustu ár. Á myndinni hér að ofan má sjá samanburð fjögur ár aftur í tímann, sem sýnir þetta vel. Frá áramótum hefur verið 5,5% fjölgun en á sama tíma fyrir ári var hún 28,1%. Næstu tvö tímabil þar á undan hafði fjölgun á milli ára verið á bilinu 28-34% milli ára.

17% fjölgun frá stærsta markaðssvæðinu

Sé breytingin skoðuð nánar eftir mörkuðum á tímabilinu janúar til september má sjá að dregið hefur úr fjölgun frá öllum mörkuðum í samanburði við fyrri ár. Norðurlandabúum fækkar um 9% frá því í fyrra, Bretum um 8% og Mið- og Suður-Evrópubúum um 5%. N-Ameríkönum fjölgar hins vegar um 17% frá því í fyrra og þjóðernum sem flokkast undir „annað“ um 13% en þar undir eru meðal annars Austur-Evrópuþjóðir, Asíubúar, Ástralir og Nýsjálendingar. Nánari skiptingu þess hóps má sjá á skífuritinu hér neðar á síðunni.

Breytt samsetning

Þegar hlutfallsleg samsetning brottfara er skoðuð á tímabilinu janúar til september síðastliðin fimm ár má sjá að samsetningin hefur breyst nokkuð eins og sjá má af grafinu hér að ofan. Hlutdeild Norður-Ameríkana hefur aukist ár frá ári en hún mældist 35,5% árið 2018. Norðurlandabúar hafa verið í kringum 7-9% af heild síðastliðin tvö ár en hefur minnkað með árunum. Sama má segja um Breta og Mið- og Suður-Evrópubúa en hlutdeild þeirra hefur jafnframt minnkað með árunum. Hlutdeild þeirra sem falla undir ,,annað“ hefur hins vegar aukist með árunum.

Betri greining með fjölgun þjóðerna í talningu

Sá hópur sem hefur stækkað hvað mest samanstendur af ,,öðrum þjóðernum“ en þar á meðal eru Asíuþjóðir. Til að fá betri mynd af samsetningu farþega var þjóðernum í talningum fjölgað úr 17 í 32 í júní á síðasta ári, en þar var meðal annars bætt við Hong Kong-búum, Indverjum, Suður-Kóreumönnum, Singapúrbúum og Taívönum. Niðurstöður úr talningum sýna að 8% farþega það sem af er ári má rekja til Asíubúa og 6% til Austur-Evrópubúa.

Ferðir Íslendinga utan

Um 58 þúsund Íslendingar fóru utan í september í ár eða 1,1% fleiri en í september 2017. Samtals voru brottfarir Íslendinga á tímabilinu janúar til september um 503 þúsund talsins eða 8,8% fleiri en á sama tímabili árið 2017.

Leiðrétting vegna ferðamannatalningar í ágúst

Eins og áður var greint var frá kom í ljós villa í talningu ISAVIA á fjölda brottfara ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli í ágúst sem Ferðamálastofa birti 7. september síðastliðinn. Nemur skekkjan um 15 þúsund erlendum brottfararfarþegum og skýrist af bilun í tölvubúnaði sem heldur utan um talningarnar.

Þannig voru brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í ágúst síðastliðnum um 291 þúsund talsins eða um sjö þúsund fleiri en í ágúst á síðasta ári.

Bandaríkjamenn voru langfjölmennastir í ágúst í ár og fjölgaði þeim verulega frá árinu áður eða um 30,6%. Fækkun var í brottförum Þjóðverja, Frakka, Breta og Kanadamanna, næstfjölmennustu þjóðernanna í ágúst en hún var á bilinu 10-22%.

Frétt um fjölda ferðamanna í ágúst hefur verið leiðrétt í samræmi við nýjar tölur. Sjá nánar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“