Guðmundur Ævar Oddsson, dósent við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri, segir Samtök atvinnulífsins snúa út úr orðum sínum, ráðast að heiðri sínum sem fræðimanni og sem persónu. Líkir hann SA við drykkjumann, persónu úr gamanþáttunum Fóstbræðrum og Donald Trump Bandaríkjaforseta. Í grein sem birtist á vef SA segir að staðhæfingar Guðmundar Ævars um ójöfnuð á Íslandi standist ekki skoðun, segja SA að fréttir upp úr rannsóknum Guðmundar séu falsfréttir og að Guðmundur rísi ekki undir þeirri ábyrgð að viðhafa vönduð vinnubrögð.
Sjá einnig: Samtök atvinnulífsins segja allt rangt í málflutningi dósents um ójöfnuð í samfélaginu
Guðmundur Ævar vísar þessu alfarið til föðurhúsanna í pistli á Kjarnanum í dag. „Útúrsnúningur SA-liða minnir helst á drykkjumann sem leitar að týndum lyklum undir næsta götuljósi vegna þess að það er þægilegra heldur en að leita þar sem lyklarnir sannarlega týndust. Þrátt fyrir það sé ég mig knúinn til þess að svara umræddum pistli, enda er hvimleitt fyrir fræðimann að sitja undir ómaklegum ásökunum um rangfærslur og óvönduð vinnubrögð,“ segir Guðmundur.
Birtir hann ítarlega útlistun á hvernig hann komist að þeirri niðurstöðu að ójöfnuður sé að aukast hér á landi og segir að SA sé að reyna að draga dul yfir þá staðreynd. „Sérstaklega beina þeir kastljósinu frá þætti eigna- og tekjumestu hópanna í misskiptingunni. Þetta er að sjálfsögðu viðbúið. Þrástef SA-liða um meðaltöl, sem vanmeta ójöfnuð, vekja hugrenningatengsl við Fóstbræðrasketsinn um konuna sem kunni bara að elda bjúgu.“
Hér má sjá Fóstbræðraatriðið sem Guðmundur vísar í:
Segir Guðmundur einnig líkindi á milli málflutnings SA og Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar kemur að falsfréttum. „Jafnframt finnst mér að persónulegar árásir í skjóli nafnleyndar ættu að vera fyrir neðan virðingu hlutaðeigandi. Það er sjálfsagt og eðlilegt að fólk og hópar berjist fyrir tilteknum hagsmunum en það fer betur á því að það sé gert á grundvelli bestu fáanlegu upplýsinga og eftir reglum rökfræðinnar.“