Eftir töluverða töf, hefur Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, loksins afhent skýrslu sína um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins, sem hann vann fyrir Félagsvísindastofnun.
Sjá nánar: Enn dregst skýrsla Hannesar – Átti að koma út á morgun
Hannes afhenti Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, skýrsluna í dag, en meðal niðurstaðna hans er að breskt stjórnvöld skuldi íslensku þjóðinni afsökunarbeiðni vegna beitingu hryðjuverkalaganna og framgöngu þeirra í Icesave málinu.
Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, er stórorður í garð þeirra Hannesar og Bjarna. Hann býsnast yfir heimtingu Hannesar á afsökunarbeiðni frá bretum og segir skýrsluna vera einskis virði:
„Merkilegt hvað þessir hlunkar í Sjálfstæðisflokknum vilja mikið að annað fólk biðji þá afsökunar. Hvað með að Hannes og hlunkarnir bæðu sjálfir afsökunar á nýfrjálshyggjunni, einkavæðingu bankanna, tilfærslu á kvótanum til örfárra, lækkun og afnámi á sköttum á hin ríku, slælegu skatteftirliti með tilheyrandi stórþjófnaði hinna efnameiri, aukinni skattheimtu á láglaunafólk og lífeyrisþega, eyðileggingu félagslega húsnæðiskerfisins, húsnæðiskreppunni, Hruninu, niðurbroti velferðar- og heilbrigðiskerfisins svo stór hópur hinna fátækustu neitar sér um læknisþjónustu, ótímabærum dauða fólks vegna þessa og þeirri tilgangslausu þjáningu, fátækt og niðurlægingu sem nýfrjálshyggjan hefur þröngvað á hin verst settu. En líklega mun enginn kalla eftir afsökun frá Hannesi, fólk hefur ekki tekið mark á honum á þessari öld. Afsökun frá honum er álíka mikils virði og skýrslan sem hann var að skila. Einskis. Hún hefur neikvætt gildi, kostnaðinn við að farga henni.“
Í athugarsemdarkerfi, við mynd af afhendingu skýrslunnar, skrifar Gunnar Smári:
„Spilltasti stjórnmálamaður landsins fær afhenta skýrsluna sem hann pantaði af heimskasta háskólamanninum. Það mátti ekki á milli sjá hvor var ánægðari.“
Í samtali við Morgunblaðið segir Hannes að honum hafi fundist við hæfi að skýrslan kæmi út núna, á 10 ára afmæli hrunsins, en tafir á útkomu hennar mætti rekja til styttingu hennar:
„Ég hafði skrifað mjög langa skýrslu og skilað henni á tilsettum tíma. Hún var um 600 blaðsíður og sá ég í samráði við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands að hún væri alltof löng. Mikill tími fór í að skera hana niður í 320 blaðsíður, en síðan fannst okkur að hún væri jafnvel of löng og ég tók þriðju atrennu að henni og skar hana niður í 180 blaðsíður.“
Samningur ráðuneytisins við Félagsvísindastofnun um verkið var gerður í júlí 2014. Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson hafði umsjón með því fyrir hönd Félagsvísindastofnunar.
Erlendir áhrifaþættir bankahrunsins (skýrslan er á ensku)
Helstu niðurstöður úr skýrslu um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins