fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Íslenska þjóðfylkingin ætlar að láta Íslendinga ganga fyrir – Ekki hælisleitendur

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 16. apríl 2018 23:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska þjóðfylkingin sendi í kvöld frá sér tilkynningu, þar sem það er sagt óþolandi að á fundi borgarstjórnar hafi hælisleitendur verið settir í forgang framyfir Íslendinga í húsnæðis-, heilbrigðis-, og skólamálum. Ætlar flokkurinn að endurskoða forgangsröðun fjármuna borgarinnar og láta Íslendinga ganga fyrir í þessum málaflokkum, komist flokkurinn til valda í borgarstjórnarkosningum:

 

„Íslenska þjóðfylkingin er ekki sammála þeirri stefnu sem samþykkt var á fundi borgarstjórnar þann 11.4 og setur hælisleitendur í forgang fram fyrir Íslendinga í húsnæðismálum, heilbrigðismálum og skólamálum. Fleira mætti telja upp þar sem góða fólkið í Borgarstjórn hefur á síðustu árum sett Íslendinga skör lægri í forgangi í þjónustu borgarinnar. Það er óþolandi að það séu mörg hundruð Íslendingar í húsnæðis hrakningum eða jafnvel á götunni vegna þess að vinstri meirihlutinn í borginni, Píratar, Samfylking, Vinstri græn og leifarnar af Bjartri framtíð skuli hafa látið ógrynni skattfjár renna til fólks sem ekki hefur búið hér á landi og ekki borgað skatta til samfélagsins á sama tíma og mikil neyð er meðal margra Íslendinga sem alla sína æfi hafa greitt sín gjöld til samfélagsins en njóta þess ekki. Íslenska þjóðfylkingin minnir á að það voru Samfylking og Vinstri græn sem gáfu bankana til hrægammasjóða og þar með leyfi til að bera mörg þúsund fjölskyldur á götuna. Það er athyglisvert að allur fjórflokkurinn í Borgarstjórn er sammála um tillöguna. Þar er Sjálfstæðisflokkurinn ekki undanskyldur nema síður sé. Íslenska þjóðfylkingin mun endurskoða forgangsröðun fjármuna borgarinnar og láta Íslendinga ganga fyrir í húsnæði, í heilbrigðismálum og skólamálum. Í þessu sambandi kemur til greina að rifta öllum samningum við félagasamtök sem gera út á að plokka peninga af borginni í það sem kallað er þjónusta við hælisleitendur.

Stjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki