Vilhjálmur Birgisson formaður VLFA og Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR koma til með að setjast niður á næstunni og skipuleggja aðgerðir í ljósi 0,25% stýrivaxtalækkun Seðlabankans. Líkt og Eyjan greindi frá í gær þá voru þeir Vilhjálmur og Ragnar Þór að íhuga kröftug mótmæli ef Seðlabankinn lækkaði ekki vextina, í morgun var svo greint frá því að vextir yrðu lækkaðir úr 5% niður í 4,75%. Það er ekki nóg að mati Vilhjálms:
Ég skal fúslega viðurkenna að þessi lækkun er ósköp aumingjaleg enda var að mínu áliti full ástæða að lækka vexti um 1% eða meira,
segir Vilhjálmur á Fésbók. Fram kom í yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans í morgun að horfur séu á hröðum hagvexti í ár eins og í fyrra, spenna á vinnumarkaði og í þjóðarbúskapnum í heild hefur því aukist þrátt fyrir aukinn innflutning vinnuafls og kröftugan framleiðnivöxt. Á móti aukinni spennu vegi hækkun gengis krónunnar en skýr merki um aukna spennu í þjóðarbúskapnum kalli á peningalegt aðhald svo að tryggja megi verðstöðugleika til meðallangs tíma.
Vilhjálmur og Ragnar Þór hyggjast setjast niður og ræða hvað skal gera, segir Ragnar Þór á Fésbók:
Þetta er það sem við spáðum Villi. Nú þurfum við að setjast niður og skipuleggja aðgerðir. Þetta er komið gott!