Sigurður Arngrímsson fjárfestir hefur eignast nær allt hlutafé í fjölmiðlafyrirtækinu Hringbraut, sem rekur sjónvarpsstöð og vefmiðil undir því heiti. Eignarhlutur Sigurðar er í félaginu Saffron Holding.
Eins og fram hefur komið í fréttum, hefur mikið tap verið á rekstri Hringbrautar og miklar mannabreytingar í stjórnunarstöðum fjölmiðilsins. Sjónvarpsstjórar hafa komið og farið á aðeins tveimur árum og nýlega var tilkynnt að Sigurjón M. Egilsson væri hættur hjá stöðinni, en hann var þá nýgenginn aftur til liðs við Hringbraut með þátt sinn Svartfugl.
Rakel Sveinsdóttir hefur hætt störfum hjá Hringbraut og er ekki lengur í hluthafahópnum. Guðmundur Örn Jóhannsson, sem hefur hingað til verið aðaleigandi fjölmiðlsins, á nú innan við eitt prósent.
Saffron Holding átti fyrir rétt um fimmtungshlut í Hringbraut. Sigurður Arngrímsson, aðaleigandi Hringbrautar, var nýlega í fréttum þar sem upplýst var að hann og félög hans hefðu verið meðal stærstu styrktaraðila stjórnmálaflokksins Viðreisnar. Námu styrkir frá honum og félögum í hans eigu yfir einni milljón króna. Þar af gaf Sigurður Viðreisn persónulega fjögur hundruð þúsund krónur í stofnstyrk, en auk þess gáfu tvö félög í hans eigu sitt hvor fjögur hundruð þúsundin til Viðreisnar.