Orðið á götunni er að nú þegar ljóst er hverjir muni stjórna Reykjavíkurborg næstu fjögur árin, muni kaupmenn á Laugaveginum flytjast á aðrar slóðir með verslanir sínar og/eða breyta verslunarrýmum sínum í gistiheimili. Ástæðan er sú að nýr meirihluti ætlar að gera Laugaveginn að göngugötu allt árið um kring, með takmarkandi bílaumferð, hvernig sem sú útfærsla verður.
Kaupmenn hafa lengi haft uppi hávær mótmæli þegar kemur að lokun fyrir bílaumferð á Laugaveginum. Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveg kærðu tímabundnar lokanir Laugavegar til innanríkisráðherra árið 2014. Þeir fullyrtu að lokun bílaumferðar á Þorláksmessu ársins 2011 hafi leitt af sér milljónatap og að borgaryfirvöld hafi hunsað mótmæli þeirra og ekkert tillit tekið til undirskriftarlista þeirra.
Viðkvæðið er svipað í dag. Því þrátt fyrir mikinn fjölda ferðamanna í miðbænum, sé það ekki að skila sér í aukinni veltu, líkt og sjá megi á lundabúðunum sem berjist í bökkum. Þá séu íslendingar hættir að nenna að fara í miðbæinn, einmitt sökum fjölda ferðamanna og þverrandi fjölbreytileika verslana.
Þróunin gæti því orðið á þann veg að Laugavegurinn verði ekki kenndur við verslun, heldur gistingu og djamm.