fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Ármann Kr. fór mikinn á herrakvöldi Breiðabliks: „Hvurn andskotann eru HK-menn að gera hérna! ? Viljið þið henda honum út úr salnum.“

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 25. maí 2018 13:55

Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, og oddviti Sjálfstæðisflokksins, muni ekki fá mörg atkvæði frá stuðningsmönnum Handknattleiksfélags Kópavogs á morgun, kjördag. Þá eru femínistar og unnendur húmors sagðir ætla að sniðganga lista Sjálfstæðisflokksins einnig.

Ástæðan er sú að um alnetið fer nú líkt og eldur í sinu, upptaka frá ræðu Ármanns á herrakvöldi Breiðabliks frá því í febrúar. Á slíkum skemmtikvöldum ríkir gjarnan afar karllæg stemmning, oft kennd við hrúta, þar sem ýmislegt er látið flakka sem allajafna engin myndi vilja kannast við að hafa látið út úr sér á opinberum vettvangi.

Samkvæmt upptökunni segir Ármann tvo brandara. Hvorugur er sérstaklega góður, en sá skárri hljómar svo:

„Vitið þið muninn á Bill Clinton og HK ? Bill Clinton hittir í mark, ekki HK.“

Þá virðist Ármann koma auga á mann í salnum sem hann segir vera HK-ing. Virðist nærvera HK-ingsins misbjóða siðferðiskennd Ármanns, því hann segir hátt og snjallt:

„Hvurn andskotann eru HK-menn að gera hérna! ? Viljið þið henda honum út úr salnum. Þetta er flugumaður! Drífðu þig út! Það þýðir ekkert að koma hingað og væla eins og einhver kelling.“

Orðið á götunni er að í dag muni nýtt kosningaloforð frá Sjálfstæðisflokknum líta dagsins ljós, þar sem HK verði lofað gulli og grænum skógum.

Upptökuna má sjá hér að neðan.

Yfirlýsing frá Breiðablik og HK

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Inter ítalskur meistari eftir sigur á AC – Allt sauð upp úr í restina og þrír fengu rautt

Inter ítalskur meistari eftir sigur á AC – Allt sauð upp úr í restina og þrír fengu rautt
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Ten Hag verður ekki rekinn á meðan tímabilið er í gangi

Ten Hag verður ekki rekinn á meðan tímabilið er í gangi
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Sancho þénaði sturlaðar upphæðir utan vallar á síðustu leiktíð

Sancho þénaði sturlaðar upphæðir utan vallar á síðustu leiktíð
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Þvílík endurkoma – Sjáðu markið sem stjarna Arsenal skoraði eftir margra mánaða fjarveru

Þvílík endurkoma – Sjáðu markið sem stjarna Arsenal skoraði eftir margra mánaða fjarveru
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum

Sérfræðingurinn segir að þetta eigir þú að borða á kvöldin ef þig langar að byrja daginn á góðum hægðum
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Glugganum skellt í lás á miðvikudagskvöld

Glugganum skellt í lás á miðvikudagskvöld
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit