Orðið á götunni er að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti og stofnandi Borgarinnar okkar, hafi stolið þrumunni af þeim framboðum sem lengst eru til hægri í borginni og kenna sig við þjóðfylkingar og frelsi. Eins og greint hefur verið frá í fréttum, þá lagði Sveinbjörg til á fundi borgarstjórnar í síðustu viku að úthlutun lóðar undir mosku Félags múslima við Suðurlandsbraut yrði afturkölluð. En það er málið sem sagt er að hafi tryggt henni kosningu fyrir Framsóknarflokkinn og flugvallarvini fyrir fjórum árum, en það varð afar umdeilt mál í samfélaginu.
Því hefur verið fleygt að nú hyggist Sveinbjörg höggva í sama knérunn og nota moskuna til að vekja athygli á framboði sínu að nýju. Sveinbjörg hefur sjálf sagt að málið snúist ekki um andúð á múslimum, heldur hvort Reykjavíkurborg eigi að vera að gefa lóðir undir byggingar án endurgjalds.
Einhverjir kynnu að halda að málflutningur Sveinbjargar hljómaði sem tónlist eftir Wagner í eyrum Íslensku þjóðfylkingarinnar og Frelsisflokksins, sem báðir eru andvígir moskunni.
Orðið á götunni er hinsvegar að framboðin bæði séu brjáluð út í Sveinbjörgu fyrir að stela stefnu þeirra. Og ekki nóg með það, heldur muni útspil hennar hafa þveröfug áhrif og tryggja byggingu moskunnar, þar sem „góða fólkið“ muni tvíeflast í sinni pólitísku réttsýni.