fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Refskák

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. mars 2018 11:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Vladimir Pútín, Rússlandsforseti viti nú ekki sitt rjúkandi ráð yfir þeirri snilldarlegu ákvörðunar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og ríkisstjórnar Íslands, að sniðganga HM í knattspyrnu vegna Skrípal málsins. Háttsettir erindrekar hafa haft á orði, að slík pólitísk refskák hafi ekki sést í alþjóðasamskiptum síðan á dögum Kalda stríðsins.

 Pútín er víst ekki vanur að fá sendar slíkar eiturpillur frá jafn háttskrifuðum embættum smáþjóða. Sem fyrrverandi KGB útsendari, er hann þó vanur eiturpillum af ýmsu tagi, sem sumir segja að hafi komið sér vel í forsetatíð hans.

 Steininn tók þó úr er Pútín var greint frá því að Guðlaugur Þór hefði sagt við Morgunblaðið, að hugsanlega yrði gripið til frekari aðgerða vegna málsins.

 Ku kappinn í Kreml, sem kallar ekki allt ömmu sína, hafa orðið svo miður sín er hann heyrði af þessu, að félagi Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, varð að setja forsetann í læsta hliðarlegu.

Ertu með athyglisverða ábendingu?
Sendu okkur póst á ordid@eyjan.is – fyllsta trúnaðar gætt.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s

Stjarna United frumsýndi nýja kærustu – Vann áður á McDonald’s
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu

Ofurparið birtir ótrúlegt myndband – Nakin í sleik í sturtu
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Chelsea væri í fallsæti án Palmer

Chelsea væri í fallsæti án Palmer
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Slot staðfestir viðræður við Liverpool

Slot staðfestir viðræður við Liverpool