fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024

Þrumunni stolið

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 15. maí 2018 11:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti og stofnandi Borgarinnar okkar, hafi stolið þrumunni af þeim framboðum sem lengst eru til hægri í borginni og kenna sig við þjóðfylkingar og frelsi. Eins og greint hefur verið frá í fréttum, þá lagði Sveinbjörg til á fundi borgarstjórnar í síðustu viku að úthlutun lóðar undir mosku Félags múslima við Suðurlandsbraut yrði afturkölluð. En það er málið sem sagt er að hafi tryggt henni kosningu fyrir Framsóknarflokkinn og flugvallarvini fyrir fjórum árum, en það varð afar umdeilt mál í samfélaginu.

Því hefur verið fleygt að nú hyggist Sveinbjörg höggva í sama knérunn og nota moskuna til að vekja athygli á framboði sínu að nýju. Sveinbjörg hefur sjálf sagt að málið snúist ekki um andúð á múslimum, heldur hvort Reykjavíkurborg eigi að vera að gefa lóðir undir byggingar án endurgjalds.

Einhverjir kynnu að halda að málflutningur Sveinbjargar hljómaði sem tónlist eftir Wagner í eyrum Íslensku þjóðfylkingarinnar og Frelsisflokksins, sem báðir eru andvígir moskunni.

Orðið á götunni er hinsvegar að framboðin bæði séu brjáluð út í Sveinbjörgu fyrir að stela stefnu þeirra. Og ekki nóg með það, heldur muni útspil hennar  hafa þveröfug áhrif og tryggja byggingu moskunnar, þar sem „góða fólkið“ muni tvíeflast í sinni pólitísku réttsýni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið

„Hefurðu séð lík?“ – 14 ára stúlka myrti móður sína og bauð vinkonu heim til að sjá líkið
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar

KSÍ skoðar að fara í herferð vegna veðmálafíknar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga

Arsenal og City gætu verið á leið í stríð um miðjumanninn öfluga
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku

Snorri furðar sig á Byggðastofnun – Sagður gera lítið úr þeim sem ekki tala íslensku
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin

Bikarinn rúllar af stað í kvöld og nú eru stórliðin með – Svona er dagskráin
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla