fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024

Breytt fyrirkomulag ?

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 8. maí 2018 12:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að fjöldi þeirra framboða sem bjóða fram lista til borgarstjórnarkosninga geti skapað ýmis vandamál, ekki síst fyrir fjölmiðla. Að ná að sinna öllum framboðum og miðla stefnumálum þeirra til lýðsins getur reynst áskorun, sérstaklega þó fyrir prentmiðla og sjónvarp, þar sem tíminn og plássið er afar dýrmætt og af skornum skammti.

Til dæmis má ljóst vera að fréttamenn RÚV svitni nokkuð í rúllukragapeysunum sínum yfir þeim fjölda framboða sem þeim ber lagaleg skylda til að gera skil, þar sem öll framboðin eiga rétt á jafn miklum tíma í hljóði og mynd. Að koma sextán oddvitum fyrir í einum kappræðuþætti yrði aðeins til þess að æra óstöðugan og ljóst að slíkt fyrirkomulag skilar ekki miklu til kjósenda, þó svo lýðræðis- og jafnræðisskyldur séu uppfylltar. Áhorfendur heima í stofu yrðu sjálfsagt litlu nær eftir klukkutíma þátt þar sem 16 oddvitar kepptust óðamála við að þylja upp sín stefnumál sín á 90 sekúndum. Ekki er loku fyrir það skotið að slíkt gæti minnt á hraðaspurningarnar í Gettu betur, þar sem enginn yfir fertugu nær að greina svör keppenda.

Orðið á götunni er að RÚV muni því brydda upp á breyttu fyrirkomulagi, þar sem oddvitunum yrði skipt niður með einhverjum hætti. Hvort oddvitar fylgisminni framboðanna sætti sig við slíka eftirgjöf á fullkomnu lýðræðisjafnræði, er hinsvegar annað mál.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 klukkutímum

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón

Jón Sigurður skrifar: Eiga ekki saman Jón og Júróvisjón
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland

Byrjunarlið Brighton og Manchester City – Enginn Haaland
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar

Starfið í töluverðri hættu eftir niðurlægingu vikunnar
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum

Helga Þórisdóttir búin að ná meðmælendum
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum
Pétur Einarsson látinn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun

Stórstjarnan plataði alla með nýrri mynd: Margir voru áhyggjufullir – Sjáðu svakalegan mun
Fókus
Fyrir 12 klukkutímum

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“