fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024

Reply all

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 4. maí 2018 13:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orðið á götunni er að tölvukunnáttu þingmanna muni fara fram á næstunni. Hægt er að fullyrða að kunnáttan sé einstaklingsbundin, en hugsanlega æði misjöfn eftir  flokkum einnig, þar sem Píratar þykja standa öðrum fremur. Þetta kemur bersýnilega í ljós þegar sumir þingmenn klúðra einföldum aðgerðum á borð við að senda tölvupóst, sem hefur verið eitt vinsælasta samskiptaformið í heiminum síðastliðin 25 ár eða svo, meðan öðrum væri treystandi til að hakka sig í gegnum eldveggi CIA ef nauðsyn krefði.

Svo kemur það af og til fyrir að stjórnmálamenn komist í fréttirnar fyrir klaufaskap sinn í kringum tölvur. Allir muna eftir tölvupóstssendingu Bjarna Harðarsonar fyrir tíu árum síðan, þá þingmanns Framsóknarflokksins, sem ætlaði að senda póst á aðstoðarmann sinn, en sendi óvart á alla fjölmiðla landsins. Í sendingunni uppljóstraðist sú fyrirætlan Bjarna að hann hugðist vega að Valgerði Sverrisdóttur, þá ráðherra Framsóknarflokksins, úr launsátri með því að leka harðorðu bréfi tveggja Framsóknarmanna til Valgerðar, í fjölmiðla. Mistök Bjarna urðu til þess að hann sagði af sér þingmennsku stuttu síðar.

Nú berast fréttir af samskonar tölvupóstsklúðri þingmanns. Innihaldið er þó ekki alveg jafn eldfimt, pólitískt séð, en Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sakaði Halldóru Mogensen, þingmann Pírata, um að leka gögnum velferðarnefndar til Stundarinnar og þingflokks Pírata, í tölvupósti sem aðeins átti að berast velferðarnefnd. Krafðist hann afsagnar Halldóru fyrir vikið. Hið rétta reyndist, að Ásmundur hafði gert „reply all“ er hann svaraði fundarboði Halldóru í tölvupósti, sem enginn trúnaður ríkti um. Því hafi svar hans við fundarboðinu, sem hann þáði ekki, borist á alla þá sem fundarboðið náði til. Stuttu síðar birtist frétt í Stundinni um málið.

Orðið á götunni er að í kjölfarið á þessu klúðri Ásmundar, hafi ónefndur þingmaður Pírata í mötuneyti Alþingis, boðist til þess að taka þingmenn á stutt tölvunámskeið, sem á því þyrftu að halda.

Ekki fylgir sögunni hvort Ásmundur þáði hið rausnarlega boð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 9 klukkutímum

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass

Halla Hrund komin með forystu í nýrri skoðanakönnun – Skýtur Katrínu og Baldri ref fyrir rass
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum

Liverpool og Feyenoord að ganga frá smáatriðum
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða

Fyrstu kaup Slot gætu orðið áhugaverð – Kostaði lítið fyrir ári en nú kostar hann tæpa 10 milljarða
Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?

MeToo-byltingin nötrar eftir sláandi bakslag – Verður Weinstein laus allra mála?
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista

Chelsea skoðar að reka Pochettino – Þrír menn á lista
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe

60 ára og skrefi nær því að verða elsti þátttakandi Miss Universe
Fókus
Fyrir 14 klukkutímum

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“

Þurfti að læra að lifa upp á nýtt eftir maníu – „Það er partur af mér að vera með geðhvarfasýki og það er enginn dauðadómur, trúðu mér“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum

Dregið í bikarnum – Stórleikur í Garðabænum