Orðið á götunni er að fulltrúar Karlalistans, sem bjóða fram til borgarstjórnar í maí, hafi safnað undirskriftum til stuðnings framboðinu í Austurstræti í gær, sem vart er í frásögur færandi, ef ekki fylgdi böggull skammrifi. Þeir sem lögðu leið sína að framboðsbásnum fengu nefnilega gefins barnabækur, líkt og auglýst hafði verið. Er það vel til fundið á þessum tímum hnignunar í læsi barna á snjallsímaöld. Karlalistinn átti bækurnar ekki langt að sækja, því einn frambjóðandinn, Huginn Thor Grétarsson, er barnabókahöfundur og rekur eigið útgáfufélag, Óðinsauga.
Oddviti Karlalistans er Gunnar Kristinn Þórðarson, sem stóð vaktina í gær og sagði við Morgunblaðið að söfnunin gengi vel og ánægjulegt væri hversu margar konur styddu framboðið.
Orðið á götunni er hinsvegar að til þess að fá gefins barnabók, hafi vegfarendur þurft að gangast undir það skilyrði að setja nafn sitt á undirskriftarlistann, sem er víst bannað. Orðið á götunni er að einnig hafi það misfarist að útskýra fyrir fólki, að setji það nafn sitt á listann, megi það ekki skrifa undir aðra samskonar lista fyrir næstkomandi sveitastjórnarkosningar, vilji það styðja önnur framboð. Svipuð umræða kemur upp við hverjar kosningar undanfarin ár, þegar framboð eða stjórnmálaflokkar lofa veraldlegum hlutum gegn stuðningi kjósenda, eins og pennum, bjór, eða pizzu. Æ sér gjöf til gjalda.