Orðið á götunni er að Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, muni skarta glænýjum, Sjálfstæðisbláum jakkafötum á næstu dögum í þinginu, jafnvel með nýjum vasaklúti í brjóstvasanum.…
Orðið á götunni er að Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, muni skarta glænýjum, Sjálfstæðisbláum jakkafötum á næstu dögum í þinginu, jafnvel með nýjum vasaklúti í brjóstvasanum. Sást til Páls í versluninni Kultur Menn í Kringlunni á dögunum, hvar hann fékk jakkafötin afhent. Páll hefur þótt einn best klæddi maður landsins um árabil og þykir standa í framvarðarsveit snyrtipinna á þingi hvað tísku varðar, ekki síst ef miðað er við karlkyns kollega hans hjá Pírötum, til dæmis. Páll var áður einn dyggasti viðskiptavinur Sævars Karls Ólasonar, eins þekktasta klæðskera landsins, meðan verslun hans var og hét.
Þeir sem eru röngu megin við þrítugt muna kannski eftir landsfrægum orðum Páls í auglýsingum frá Sævari Karli frá árinu 1985:
„Ég hef mjög einfaldan smekk. Ég vel aðeins það besta, fötin frá Sævari Karli, Bankastræti 9.“ Þá var Páll fréttamaður ríkissjónvarpsins og vakti auglýsingin deilur, þar sem fréttamenn máttu ekki koma fram í auglýsingum samkvæmt reglum RÚV. Sama kvöld og auglýsingin birtist fyrst á skjánum, stjórnaði Páll umræðuþætti þar sem þáverandi fjármálaráðherra, Albert Guðmundsson, var tekinn á beinið af afskaplega snyrtilega klæddum fréttamanni sjónvarpsins, prúðbúnum í nýtísku jakkafötum.
Páll skar niður jakkafatastyrk fréttamanna og fréttalesara RÚV skömmu eftir hrun, í starfi sínu sem útvarpsstjóri. Páll var þá einnig fréttalesari, en fatastyrkur RÚV nam 80-300 þúsund krónum á ári. Páll hefur ekki þótt neitt sérstaklega púkó síðan.
Af gefnu tilefni skal tekið fram að Alþingi endurgreiðir ekki jakkafatakaup, svo vitað sé.