L’Humanité er dagblað sem hefur verið málgagn franskra kommúnista alla tíð, alveg frá 1920. Það er reyndar stofnað fyrr, árið 1904, af Jean Jaurès sem var einn helsti leiðtogi sósíalistahreyfingarinnar í Frakklandi og Evrópu um aldamótin 1900 og fram í fyrra stríð.
Blaðið var eitt sinn stórveldi og hafði mikil áhrif, enda voru kommúnistar mjög sterkir í Frakklandi á sínum tíma. Það seldist í mörg hundruð þúsund eintökum en nú eru þau innan við þrjátíu þúsund og blaðið er í andaslitrunum.
Hið sögufræga blað ítalskra kommúnista, L’Unità, lagði upp laupana fyrir tveimur árum. Það var stofnað af öðru ljósi kommúnistahreyfingarinnar, Antonio Gramsci, árið 1924.
Í Frakklandi tíðkast opinber stuðningur við dagblöð, en L’Humanité hefur ekki bara tapað áskrifendum heldur hafa auglýsingatekjurnar líka dregist saman. Stjórnendur blaðsins reyna nú hvað þeir geta til að halda blaðinu á lífi en ólíklegt er talið að það takist. Kannski verður hægt að lengja líftíma þess um nokkra mánuði.
Ýmsir hafa þó látið í ljósi þá skoðun að nauðsynlegt sé að rödd L’Humanité haldi áfram að heyrast – undir þá skoðun hafa líka tekið stjórnmálamenn af hægri vængnum. En blaðadauðinn hefur verið mjög skæður í Frakklandi og þrátt fyrir opinberan stuðning hafa mörg héraðsfréttablöð, sem áður voru mjög voldug, gefist upp.
(Myndin er af frægri forsíðu L’Humanité. Stalín, maðurinn sem við elskum mest, stendur þar.)