Sæl Helga Björk,
í frétt ríkisútvarpssins segir frá skrifum borgarritara um ónafngreinda borgarfulltrúa á lokuðum vef starfsmanna borgarinnar: http://www.ruv.is/frett/stefan-segir-kjorna-fulltrua-eitra-fra-ser
Af þessu tilefni vil ég nefna þrennt:
1) Í skrifunum er verið að dylgja um ónafngreinda borgarfulltrúa. Með því að nefna engan liggja allir undir grun. Ef RÚV hefði ekki sagt frá þessum skrifum hefðu borgarfulltrúar ekki vitað um þau.
2) Þá er fullyrt að siðanefnd Sambands (íslenskra) sveitarfélaga hafi talið að framganga einstakra borgarfulltrúa hafi brotið gegn siðareglum. Þetta kannast ég ekki við. Eingöngu almennar leiðbeiningar af hálfu siðanefndarinnar.
3) Þess er óskað að á næsta forsætisnefndarfundi verið lögð fram öll þau ummæli sem æðstu embættismenn borgarinnar hafa haft um kjörna fulltrúa á þessum lokaða starfsmannavef.