fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Björn hjólar í Viðreisn: „Sameinast gamla meirihlutanum í afneitun allra lögbrota“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 21. febrúar 2019 12:59

Mynd Hanna DV

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Viðreisn hefur sameinast gamla meirihlutanum í afneitun allra lögbrota sem hann stundaði á fyrra kjörtímabili, þar á meðal brotanna í tengslum við kosningarnar.“

Þetta er inntakið í pistli Björns Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins, er hann reifar brot Reykjavíkurborgar á persónuverndarlögum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga í maí 2018 og viðbrögð meirihlutans við niðurstöðu Persónuverndar.

Frumlegasta afneitunin

Björn hnýtir í Líf Magneudóttur, borgarfulltrúa VG, vegna skýringa hennar á málinu:

„Þáverandi forseti borgarstjórnar VG-konan Líf Magneudóttir sagði ekki um kosningasvindl að ræða enda hefði hennar flokkur og Samfylkingin, sem voru í meirihluta, ekki aukið fylgi sitt í kosningunum! Þetta er frumlegasta afneitun stjórnmálamanns á lögbroti sem birst hefur.“

Þá segir Björn að Viðreisn hafi aðstoðað meirihlutann við afneitun lögbrotum:

„Meirihlutinn sem stóð að lögbrotunum hélt áfram að loknum kosningunum með aðstoð fjórða flokksins, Viðreisnar. Hann hefur sameinast gamla meirihlutanum í afneitun allra lögbrota sem hann stundaði á fyrra kjörtímabili, þar á meðal brotanna í tengslum við kosningarnar.“

Björn minnist á borgarstjórnarfundinn á þriðjudag, þar sem meirihlutinn lagði til breytingatillögu við tillögu minnihlutans, sem var allt annars eðlis og seint til þess fallin að upplýsa um brot borgarinnar:

„Aðild Viðreisnar að nýjustu afneituninni birtist á borgarstjórnarfundi þriðjudaginn 19. febrúar. Þá fluttu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Flokk fólksins tillögu um að sveitarstjórnarráðuneytinu yrði falið að skoða aðgerðir Reykjavíkurborgar í tengslum við kosningaþátttöku tiltekinna hópa vorið 2018. Brotlegu flokkarnir auk Viðreisnar treystu sér hvorki til að fá óhlutdræga skoðun þriðja aðila á starfsháttum sínum né til að fella tillögu flokkanna þriggja. Þeir gripu þess í stað til enn eins blekkingarleiksins með því að flytja og samþykkja breytingartillögu við tillögu minnihlutans sem kollvarpaði efni hennar. Í stað þess að þriðji aðili leggi mat á löglaus vinnubrögð borgaryfirvalda vilja brotlegu flokkarnir og Viðreisn fara í samstarf við sveitarstjórnarráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga til að kanna reynslu af því að efla kosningaþátttöku í undanförnum kosningum í ljósi ákvörðunar Persónuverndar!“

Þolir ekki athugun óháðra

Þá minnist Björn á viðtal borgarstjóra í morgun:

„Í dag, 21. febrúar, kemur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í útvarpsviðtal og segir það alvarlegt mál að einstakir pólitískir fulltrúar hafi reynt að toga þetta mál ofan í flokkspólitískar skotgrafir. Það voru brotlegu flokkarnir þrír auk Viðreisnar sem drógu málið ofan í svaðið með valdboði sínu. Þeir þola ekki fleiri athuganir óháðra aðila. Svo reynir borgarstjóri að verjast með því að kjörsókn hafi minnkað á Norðurlöndunum og að vegið hafi verið ómaklega að starfsmönnum Háskóla Íslands vegna samstarfs þeirra við Reykjavíkurborg um þetta verkefni. Borgarstjóri lét þess ekki getið að háskólamennirnir lýsa rannsóknina ónýta vegna þess hvernig borgaryfirvöld undir stjórn Dags B. stóðu að þessu máli, brutu lög og sýndu Persónuvernd óvirðingu.“

Sjá einnig„Skiljanlegt er að Dagur vilji ekki ræða þetta“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn