fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Miðflokkurinn tapar fylgi

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 20. febrúar 2019 11:45

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Gunnar Bragi Sveinsson í bakgrunni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjálfstæðisflokkurinn mældist með stuðning 22,7% landsmanna í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 11.-15. febrúar. Fylgi Sjálfstæðisflokksins jókst um tæpt prósentustig frá síðustu mælingu sem lauk 28. janúar. Samfylkingin mældist með 15,9% fylgi, sem er tæplega hálfu prósentustigi meira en flokkurinn mældist með í síðustu könnun og fylgi Framsóknarflokksins jókst um tæpt prósentustig og mældist nú 13,5%.

Þá minnkaði fylgi Vinstri grænna um rúmlega eitt prósentustig, fylgi Pírata minnkaði um rúmlega eitt og hálft prósentustig og fylgi Miðflokksins minnkaði um rúmlega tvö prósentustig frá síðustu mælingum.

Stuðningur við ríkisstjórnina jókst lítillega en 42,8% sögðust styðja ríkisstjórnina nú samanborið við 41,5% í síðustu mælingu.

Fylgi Vinstri grænna mældist nú 11,1% og mældist 12,2% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,4% og mældist 12,0% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,1% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,9% og mældist 5,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 6,1% og mældist 8,3% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 5,2% samanlagt.

 

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,8%), myndu skila auðu (7,9%), myndu ekki kjósa (2,3%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (5,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

 

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 934 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 11. til 15. febrúar 2019

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki