Flugfélagið WOW air hefur óskað eftir greiðslufrest vegna ógreiddra lendinga- og farþegagjalda á flugvöllum sem þeir skipta við. Þetta hefur Túristi.is eftir áreiðanlegum heimildum.
Í bréfi sem WOW sendi frá sér er óskað eftir því að fá að greiða áðurnefnd gjöld um miðjan mars í stað þess að gera slíkt í lok febrúar, líkt og áður var áformað.
Frestur skuldabréfaeigenda WOW til Skúla Mogensen og Indigo Partners til að komast að samkomulagi um kaup og sölu á stórum hluta flugfélagsins rennur út í lok febrúar. Engar upplýsingar hafa verið gefnar um hvernig samningaviðræum miðar áfram og greinir Túristi.is frá því að blaðafulltrúar svari engum fyrirspurnum.
Í frétt túrista er einnig greint frá því að engin svör hafi fengist frá flugvélaleigunni Avolon um hvort þau muni hleypta WOW út úr tólf ára leigusamninga á fjórum nýjum breiðþotum. Afhending þotanna átti að eiga sér stað í lok síðasta árs en var seinkað fram í febrúar.
Talið er að það geti kostað WOW á bilinu 300 til 500 milljónir króna að losna undan samningnum, fyrir hverja þotu.