fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Jóhanna Fjóla sett forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 13. febrúar 2019 14:14

Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett Jóhönnu Fjólu Jóhannesdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vesturlands til eins árs. Jóhanna hefur gegnt starfinu frá 1. febrúar 2017 í fjarveru Guðjóns S. Brjánssonar sem situr á Alþingi.

Embættið var auglýst laust til umsóknar í lok nóvember síðastliðinn og var Jóhanna Fjóla metin hæfust þeirra fjögurra sem sóttu um stöðuna, samkvæmt niðurstöðu lögskipaðrar hæfnisnefndar.

Jóhanna Fjóla  hefur starfað við Heilbrigðisstofnun Vesturlands frá því að hún var sett á fót árið 2010, áður sem framkvæmdastjóri hjúkrunar- og rekstrar og sem verkefnastjóri þróunar- og gæðamála. Hún var verkefnastjóri hjúkrunar árin 2000 – 2009 en fyrir þann tíma starfaði hún við Sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hún var m.a. hjúkrunarforstjóri um eins árs skeið.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007. Stofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Vesturlands sem nær yfir sveitarfélögin Akraneskaupstað, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshrepp, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshrepp, Snæfellsbæ, Grundarfjarðarbæ, Helgafellssveit, Stykkishólmsbæ, Dalabyggð, Reykhólahrepp, Strandabyggð, Kaldrananeshrepp, Árneshrepp og Húnaþing vestra. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus