fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Um 7.000 íbúðir eru í byggingu hér á landi

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 12. febrúar 2019 09:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2018 voru rúmlega 24 þúsund fasteignir auglýstar til sölu á  öllu landinu sem er 47% aukning frá árinu á undan, þegar rúmlega 16 þúsund fasteignir komu nýjar inn á fasteignasöluvefi landsins. Það er því ljóst að framboð fasteigna jókst mikið á nýliðnu ári, á sama tíma og sölutími hélst nokkurn veginn óbreyttur. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs.

Meðalsölutími styttist verulega utan höfuðborgarsvæðisins

Utan höfuðborgarsvæðisins fór meðalsölutími fasteigna lækkandi á nýliðnu ári líkt og þróunin hefur verið allt frá árinu 2015, bæði í sérbýli og fjölbýli. Til að mynda var tíminn sem það tók að selja íbúð í fjölbýli utan höfuðborgarsvæðisins um 100 dagar árið 2018 samanborið við um 270 daga árið 2015. Sölutími á höfuðborgarsvæðinu breyttist lítið frá fyrra ári.

Leiguverð hækkaði meira en íbúðaverð og laun á síðasta ári

Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði meira en íbúðaverð á milli áranna 2017 og 2018 samkvæmt þinglýstum leigu- og kaupsamningum sem liggja til grundvallar vísitölum sem Þjóðskrá gefur út. Leiguverð hækkaði um 8,3% milli ára á sama tíma og íbúðaverð hækkaði um 6,2% á höfuðborgarsvæðinu. Hagstofa Íslands tekur saman gögn um launaþróun á landsvísu og má sjá að hækkun launa milli ára er áþekk hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu eða 6,5%

Íbúðir í byggingu á landinu öllu

Um 7.000 íbúðir eru þessa dagana í byggingu hér á landi samkvæmt nýjustu upplýsingum. Af þessum 7.000 íbúðum eru ríflega 5.000 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu. Næst á eftir höfuðborgarsvæðinu eru flestar íbúðir í byggingu á Suðurnesjum eða um 634 talsins. Hlutfallslega flestar íbúðir eru í byggingu á suðvesturhorninu og fæstar á Vestfjörðum.

1,5 milljarður úthlutaður til 267 almennra íbúða

Alls var 1,5 milljörðum króna úthlutað úr ríkissjóði til fjármögnunar 267 leiguíbúðum fyrir tekju- og eignaminni leigjendur eða aðra félagshópa í síðari úthlutun ársins 2018. Alls hefur stofnframlögum verið úthlutað sex sinnum frá 2016 til 2018, samtals um 9 milljörðum kr. til uppbyggingar eða kaup á tæplega 1.700 íbúðum. Markmið með veitingu stofnframlaga er að bæta húsnæðisöryggi efnaminni fjölskyldna og einstaklinga með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi íbúðarhúsnæði til leigu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins