Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman fjölda erlendra ríkisborgara sem eru búsettir hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2018.
Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, eða 22,3% og Vesturland kemur næst með 15,5%. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er á Norðurlandi vestra eða 6,8%.
Mýrdalshreppur er með hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara en alls eru 40% skráðra íbúa í Mýrdalshreppi með erlent ríkisfang eða 280 íbúar hreppsins af 687. Næst hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skaftárhreppi eða 28,3% og Bláskógabyggð með 25,7%. Þess má geta að lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er í Árneshreppi en enginn íbúi sem er með skráða búsetu í hreppnum er með erlent ríkisfang.
Skagabyggð kemur næst með 1,1% en þar er aðeins einn íbúi sveitarfélagsins með erlent ríkisfang.
Alls voru 44.276 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi þann 1. janúar sl. og hefur þeim fjölgað um 6.465 manns frá 1. desember 2017 og 120 frá 1. desember sl.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu úr þjóðskrá á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir skráðu ríkisfangi.
Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi eða 19.269 og 4.093 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.
Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 79 á síðastliðnum mánuði en litháískum ríkisborgurum fækkaði um 1 einstakling á sama tímabili.
Frá 1. desember 2015 til 1. desember 2018 hefur erlendum ríkisborgurum sem eru skráðir til heimilis hér á landi fjölgað úr 26.387 í 44.156 manns. Þetta er fjölgun sem nemur 67,6%. Á sama tímabili hefur hlutfall landsmanna með erlent ríkisfang aukist úr 7,9% í 12,4%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa og hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitarfélögum.