fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Iðnaðarhúsnæði víkur fyrir atvinnustarfssemi – Allt að 500 íbúðir við Suðurlandsbraut og Ármúla

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 11. janúar 2019 17:15

Mynd-reykjavik.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil uppbygging er fyrirhuguð á lóðinni Suðurlandsbraut 34 / Ármúla 31, sem er í eigu Reita fasteignafélags. Gert er ráð fyrir að lóðin geti rúmað 4 – 500  íbúðir ásamt húsnæði fyrir atvinnustarfsemi. Iðnaðarhúsnæði sem fyrir er við Ármúla mun víkja fyrir þessari uppbyggingu. Gert er ráð fyrir að Orkuhúsið svokallaða muni standa áfram.

Borgarstjóri og forstjóri Reita skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um samstarfið og uppbygginguna. Undirskriftin fór fram á þaksvölum Orkuhússins samkvæmt tilkynningu:

„Þetta er stór og mikilvægur uppbyggingarreitur í borginni sem stendur meðfram fyrsta áfanga Borgarlínu. Það er mikilvægt að samstaða er um að stefna að fjölbreyttri, spennandi og blandaðri byggð. Suðurlandsbrautin er hryggjarstykkið í nýjum þróunarási borgarinnar sem nær frá Hlemmi upp að Ártúnshöfða þannig að þetta eru mikilvæg tímamót og verkefni sem vonandi mun gefa tóninn á svæðinu,“

segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

„Reitir hafa í nokkurn tíma haft áform um að nýta betur stóra lóð félagsins sem stendur á mikilvægum reit á horni Suðurlandsbrautar og Grensásvegar. Að mati félagsins er staðsetning lóðarinnar afar vel til þess fallin til að þróa þar blandaða byggð sem felur í sér aukna áherslu á íbúðir í bland við atvinnuhúsnæði. Þá mun fyrirhuguð uppbygging njóta góðs af nálægð við þjónustu í Skeifunni og Glæsibæ sem og við útisvistarsvæði í Laugardal, íþróttir og ekki síst samgöngur, þar sem borgarlínunni er ætlað að liggja um Suðurlandsbraut,“

segir Guðjón Auðunsson forstjóri Reita.

Lóð minnkuð vegna Borgarlínu

Í viljayfirlýsingu kemur fram að deiliskipulag fyrir svæðið verði endurskoðað í samræmi við aðalskipulag Reykjavíkur 2010 – 2030 og verða þrjár arkitektastofur fengnar til að vinna hugmyndir að breyttu skipulagi.  Gert er ráð fyrir að lóðin verði minnkuð við Suðurlandsbraut vegna fyrirhugaðrar legu Borgarlínu.

Áform sem voru  kynnt í borgarráði í desember miða við blandaða byggð og að heildarbyggingarmagn á lóðinni verði að lágmarki 45.000 fermetrar, íbúðir verði 400 til 500 talsins  og atvinnuhúsnæði um 5 – 6.000 fermetrar. Endanlegt byggingamagn, útfærsla og gerð húsnæðis mun taka mið af fyrirhugaðri hugmyndasamkeppni um skipulag lóðarinnar. Uppbygging á lóðinni verður í samræmi við markmið og í anda húsnæðisáætlunar Reykjavíkurborgar þannig að um 15% íbúða á lóðinni verða leiguíbúðir, íbúðir Félagsbústaða, stúdentaíbúðir, búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða.

Þegar deiliskipulagshugmynd liggur fyrir verður uppbyggingin útfærð nánar og tímasett, sem og gengið frá samkomulagi um  greiðslur, kauprétt og kvaðir. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við uppbyggingu á lóðinni geti hafist innan tveggja ára frá því nýtt deiliskipulag hefur verið samþykkt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn