fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Ragnar Þór leggur spilin á borðið: „Sturlað viðhorf viðsemjenda okkar“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 22. febrúar 2019 10:33

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að framganga Samtaka atvinnulífsins opinberi sturlað viðhorf og samtökin séu með fjarstæðukenndan áróður. Fullyrðingar um að kröfur verkalýðshreyfingarinnar feli í sér 60 til 85% launahækkanir séu fjarstæðukenndar. Tilboð SA þýði hins vegar í raun kjararýrnum. Til dæmis sé tilboð upp á 2,5% launahækkun í raun launalækkun í 3,6% verðbólgu. Hann bendir jafnframt á að laun bankastjóra Landsbankans hafi hækkað um 1.700.000 á mánuði og laun alþingismanna og æðstu embættismanna hafi hækkað um 45%

Í nýjum pistli á Facebook-síðu sinni fer Ragnar Þór skipulega í gegnum þær tölur sem hafa verið uppi á borðum og hvað í þeim felst:

Tilboð SA til félagsmanna VR.

15.000 kr. Á laun undir 600.000 kr. Og 2,5% á laun umfram það. ATH. Ekki 20.000 kr.!!

Sérstök 5.000 kr. Hækkun á lægstu taxta sem eru í dag 270.408 kr.

Verðbólguspá fyrir 2019 er 3,4 til 3,6%.

Á meðan lýðskrumarar og aðrir lobbíistar sérhagsmuna tala um nútíma hagfræði, kulnun í hagkerfinu eða skrumskæla kröfugerðir verkalýðshreyfingarinnar eins og kom fram í málflutningi SA í gær þá er rétt að benda á nokkrar staðreyndir.

Tiilboð SA til megin þorra félagsmanna VR felur í sér kaupmáttarrýrnun!

2,5% hækkun launa í 3,6% verðbólgu er ekki ábyrg nálgun í kjaraviðræðum!

15.000 kr. Hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 kr. Útborgað!

Leigufélögin eru byrjuð að hækka leigu um tugi þúsunda og dæmi er um einstæða móður sem fékk bréf frá Almenna leigufélaginu þar sem tilkynnt var um 20.000 kr. Hækkun á leigu í nýjum árs samningi. SA býður þessum félagsmanni VR 8.975 kr. upp í þann kostnað. Mismunurinn er 11.025kr. sem uppá vantar.

SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækkuðu um 82%.

SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun Alþingismanna og æðstu embættismanna hækkuðu um 45% og yfir.

SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 15.000 kr. á meðan laun framkvæmdastjóra SA munu hækka um 90.000 kr. Samkvæmt sama tilboði.

Stjórnvöld og SA tala um kólnun í hagkerfinu, ábyrgð og svigrúm á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækka um 1.700.000 kr. Á mánuði, eða 82%, og þykir sú hækkun hófleg í núverandi árferði að mati stjórnenda bankans.

Í kröfugerð VR er sama krónutöluhækkun á alla og að lægstu laun hækki úr 300.000 kr. Í 425.000 kr á mánuði á þremur árum.

Fullyrðingar SA um að krafa okkar sé 60 til 85% á öll laun er svo fjarstæðukenndur áróður að hann er varla svaraverður en hlýtur að opinbera sturlað viðhorf viðsemjenda okkar til kröfugerðarinnar og stöðunar á vinnumarkaði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn