fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Hörður varpar sprengju og segir fólki að spenna beltin – „Allir tapa á þessari brjálsemi sem er í uppsiglingu “

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 22. febrúar 2019 09:09

Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Þau eru yfirleitt á öndverðum meiði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þetta var aldrei að fara öðruvísi. Leiðtogar hinnar róttæku verkalýðshreyfingar, hvar formaður Eflingar fer fremst í flokki, höfðu lítinn áhuga á að ná kjarasamningum. Tilgangurinn hefur fremur verið að sækjast eftir átökum og verkföllum með pólitísk markmið að leiðarljósi.“

Þetta segir Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, í leiðara Fréttablaðsins í dag. Hörður hefur verið ómyrkur í máli um kröfur verkalýðshreyfingarinnar og margsinnis látið þá skoðun í ljós að ekki sé heil brú í málflutningi hennar. Í gær slitu Efling, VR, VLFA og VLFG viðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins (SA) en félögin höfðu átt í kjaraviðræðum við SA hjá ríkissáttasemjara. Félögin hafa nú hafið undirbúning verkfallsboðunar en þau munu hafa samvinnu um verkfallsaðgerðirnar.

Sjá einnig: Vilhjálmur kallar eftir stuðningi:„Nú verður ráðist á okkur“ – Árásirnar eru rétt að byrja

Útmálaðir sem óvinir fólksins

Hörður er harðorður í leiðara sínum í dag og segir að nú sé það að raungerast að verkalýðshreyfingin hafi haft lítinn áhuga á að ná kjarasamningum.

„Vanstillt viðbrögð við útspili stjórnvalda hafa undirstrikað þá staðreynd. Tillögur um skattabreytingar, hækkun barnabóta og hækkun persónuafsláttar kosta ríkið um 18 milljarða. Ljóst er að ekki verður gengið lengra – og ríkið á alls ekki að ljá máls á því – nú þegar tekjur ríkissjóðs munu fara þverrandi samhliða niðursveiflu í efnahagslífinu.“

Hörður fer svo ófögrum orðum um Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar.

„Með lýðskrum að vopni, þar sem engu er skeytt um efnahagslegar staðreyndir og allir sem dirfast að vara við marxískum orðavaðlinum eru útmálaðir sem óvinir fólksins, hefur formönnum VR og Eflingar, ásamt ýmsum fylgitunglum sínum, tekist að tromma upp sífellt ískyggilegri stemningu í samfélaginu. Þau hafa markvisst spilað á tilfinningar fólks, einkum þeirra sem lægstu launin hafa, og vakið falsvonir um að hægt sé að ná fram stórfelldum launahækkunum og kjarabótum gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum með einu pennastriki.“

Hörður segir að þetta hafi þeim tekist í krafti þess að vera komin með dagskrárvaldið í íslenskum fjölmiðlum. Segir Hörður að of fáir séu reiðubúnir að stíga fram og benda á „ruglið“ sem hann segir magnast upp í hverri viku sem líður og hvaða afleiðingar málflutningur verkalýðshreyfingarinnar mun hafa fyrir kjör meginþorra almennings.

Hagkerfinu haldið í gíslingu?

„Þótt oft hafi hart verið tekist á milli aðila vinnumarkaðarins þá er það líklega einsdæmi að verkalýðshreyfingin, sem er núna stýrt af reynslulitlu fólki, hafi komið fram með eins sverar kröfur á sama tíma og hagkerfið er tekið að kólna mjög snögglega. Hagkerfinu hefur verið haldið í gíslingu vegna þeirrar óvissu sem uppi hefur verið á vinnumarkaði. Stórar ákvarðanir hjá fyrirtækjum og heimilum – hvort sem um er að ræða fjárfestingar eða fasteigna- og bílakaup – eru af þessum sökum margar hverjar í biðstöðu.“

Hörður bendir á gögn máli sínu til stuðnings og segir að hagvísir Analytica, sem gefur vísbendingar um umsvif í hagkerfinu að sex mánuðum liðnum, hafi lækkað tólf mánuði í röð. Slíkt hafi ekki gerst fyrr en hrunárið 2008. Þá segir hann að innflutningur sé að dragast saman, mikill samdráttur hafi verið í debetkortaveltu og þá hafi ferðamannafjöldi þróast til verri vegar.

„Tilraunadýr marxískrar hugmyndafræði“

„Venjulegt íslenskt launafólk, sem stendur undir meginþorra samneyslunnar, kærir sig flest hvert ekkert um að vera notað sem tilraunadýr fyrir marxíska hugmyndafræði byltingarsinna sem telja sig þess umkomna að knýja fram pólitískar kerfisbreytingar. Það vill fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagsmálum. Það hefur tekist síðustu ár þar sem Íslendingar hafa upplifað verðstöðugleika og fordæmalausa kaupmáttaraukningu. Þeim ávinningi á nú að kasta fyrir róða,“ segir Hörður og bætir við að ákvörun um verkfallsboðun muni ein og sér valda miklu tjóni. Það dragi hreinlega úr getu atvinnurekenda til launahækkana.

„Allir tapa á þessari brjálsemi sem er í uppsiglingu og mun hafa í för með sér meiriháttar lífskjaraskerðingu fyrir almenning. Gengið mun veikjast, verðbólga aukast, vextir hækka og uppsagnir og gjaldþrot fyrirtækja eru óhjákvæmileg. Spennið beltin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt