fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Óttast að litið verði á frumvarp dómsmálaráðherra sem stuðning við hatursorðræðu

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 14. febrúar 2019 16:00

Sigríður Á. Andersen

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtökin ´78 lýsa andstöðu sinni við frumvarp Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra, sem þrengja gildissvið laga um hatursáróður. Samkvæmt núgildandi lögum á hver sá sem hæðist að öðrum opinberlega, rógber, smánar eða ógni manni eða hópi manna, yfir höfði sér sekt eða fangelsisvist.

Í frumvarpi Sigríðar verður ekki lengur refsivert að gera allt ofantalið, nema það þyki til þess fallið að „hvetja til eða kynda undir hatri, ofbeldi eða mismunun“.

Í greinargerð frumvarpsins er tekið fram að tilgangurinn með þessu sé að bregðast við tveimur dómum Hæstaréttar frá 2017, þar sem í bæði skiptin var sakfellt fyrir broti gegn áðurnefndu ákvæði um hatursorðræðu, en líklega hefði ekki verið sakfellt fyrir brotin, með breyttum lögum.

Eindregin andstaða

Samtökin ´78 hafa áhyggjur af þessu þar sem það feli í sér röng skilaboð:

„Við óttumst að fólk sem þjáist af fordómum og viðhefur eða samþykkir hatursorðræðu muni líta á ofangreint frumvarp sem stuðningsyfirlýsingu frá stjórnvöldum. Það eru væntanlega ekki skilaboð sem ríkisstjórn sem setur fram í stjórnarsáttmála sínum að Ísland eigi að vera ‘í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks’ vill senda. Samtökin ‘78 lýsa þess vegna yfir eindreginni andstöðu sinni við frumvarpið.“

Í tilkynningu samtakanna segir einnig að fjöldi fólks hafi viðrað áhyggjur sínar og að hatursorðræða sé gjarnan undanfari ofbeldis:

„Ofbeldi gegn minnihlutahópum verður ekki til í tómarúmi. Það er vel þekkt staðreynd að hatursorðræða er undanfari ofbeldis, en ofbeldi og ofsóknir gagnvart minnihlutahópum hafa ítrekað verið settar í beint samhengi við hatursorðræðu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur bent á það að umburðarlyndi og virðing fyrir jafnrétti og mannlegri reisn séu grundvöllur opinna lýðræðissamfélaga. Þess vegna geti ekki aðeins verið réttlætanlegt, heldur nauðsynlegt að takmarka orðræðu sem dreifir eða hvetur til haturs byggðu á umburðarleysi. Í ljósi þessa hefur verið samstaða um að tjáningarfrelsinu þurfi að setja skorður til þess að vernda frelsi minnihlutahópa.“

„Sérstaklega er tekið fram í greinargerð frumvarpsins að um viðbrögð við dómunum tveimur sé að ræða og að samkvæmt breyttum lögum hefðu fyrrnefndir einstaklingar líklega ekki verið dæmdir fyrir hatursorðræðu. Einnig er tekið fram að þrengja eigi ákvæðið þrátt fyrir að núverandi lög um hatursorðræðu stangist ekki á við tjáningarfrelsisákvæði 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og þrátt fyrir að þetta frumvarp muni minnka refsivernd minnihlutahópa gagnvart hatursorðræðu. Í kjölfar frétta af frumvarpinu hefur fjöldi félagsmanna sett sig í samband við Samtökin ‘78 og viðrað áhyggjur sínar og óöryggi vegna fyrirhugaðra breytinga.“

 

Yfirlýsing Samtakanna ´78:

YFIRLÝSING VEGNA ÞRENGINGAR Á LÖGUM UM HATURSORÐRÆÐU

Ofbeldi gegn minnihlutahópum verður ekki til í tómarúmi. Það er vel þekkt staðreynd að hatursorðræða er undanfari ofbeldis, en ofbeldi og ofsóknir gagnvart minnihlutahópum hafa ítrekað verið settar í beint samhengi við hatursorðræðu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur bent á það að umburðarlyndi og virðing fyrir jafnrétti og mannlegri reisn séu grundvöllur opinna lýðræðissamfélaga. Þess vegna geti ekki aðeins verið réttlætanlegt, heldur nauðsynlegt að takmarka orðræðu sem dreifir eða hvetur til haturs byggðu á umburðarleysi. Í ljósi þessa hefur verið samstaða um að tjáningarfrelsinu þurfi að setja skorður til þess að vernda frelsi minnihlutahópa.

 Núverandi ákvæði um hatursorðræðu (233. gr. a almennra hegningarlaga) er svo hljóðandi: Hver sem opinberlega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

 Samtökin ‘78 börðust á sínum tíma fyrir því að hópum hinsegin fólks yrði bætt við ákvæðið, þ.e. að hatursorðræða á grundvelli kynhneigðar (1996) og kynvitundar (2014) skyldi gerð refsiverð. Árið 2015 tóku Samtökin síðan þá ákvörðun að kæra fyrir hatursorðræðu eftir að sérstaklega skaðleg umræða fór fram á opinberum vettvangi í tengslum við hinsegin fræðslu í grunnskólum Hafnarfjarðar. Árið 2017 féllu tveir dómar í Hæstarétti þar sem einstaklingar voru dæmdir sekir um hatursorðræðu gegn hinsegin fólki. Þau ummæli sem sakfellt var fyrir voru mjög gróf, lýstu hatri á hinsegin fólki og bendluðu það, í öðru tilfellinu, við barnaníð. Slík tjáning grefur ekki aðeins undan friðhelgi einkalífs þeirra sem slík orðræða beinist gegn, heldur rænir þau einnig öryggistilfinningu.

 Nú liggur fyrir stjórnarfrumvarp frá dómsmálaráðherra þar sem eftirfarandi klausu er bætt aftan við ákvæði um haturorðræðu: enda sé háttsemin til þess fallin að hvetja til eða kynda undir hatri, ofbeldi eða mismunun.

 Sérstaklega er tekið fram í greinargerð frumvarpsins að um viðbrögð við dómunum tveimur sé að ræða og að samkvæmt breyttum lögum hefðu fyrrnefndir einstaklingar líklega ekki verið dæmdir fyrir hatursorðræðu. Einnig er tekið fram að þrengja eigi ákvæðið þrátt fyrir að núverandi lög um hatursorðræðu stangist ekki á við tjáningarfrelsisákvæði 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og þrátt fyrir að þetta frumvarp muni minnka refsivernd minnihlutahópa gagnvart hatursorðræðu. Í kjölfar frétta af frumvarpinu hefur fjöldi félagsmanna sett sig í samband við Samtökin ‘78 og viðrað áhyggjur sínar og óöryggi vegna fyrirhugaðra breytinga.

 Sérstök ástæða er til þess að hafa áhyggjur af efni greinargerðarinnar, en eins og fram hefur komið er þessi þrenging á ákvæðinu lögð til í beinu samhengi við nýlega dóma sem hafa fallið í Hæstarétti um hatursorðræðu í garð hinsegin fólks. Við óttumst að fólk sem þjáist af fordómum og viðhefur eða samþykkir hatursorðræðu muni líta á ofangreint frumvarp sem stuðningsyfirlýsingu frá stjórnvöldum. Það eru væntanlega ekki skilaboð sem ríkisstjórn sem setur fram í stjórnarsáttmála sínum að Ísland eigi að vera ‘í fremstu röð í málefnum hinsegin fólks’ vill senda. Samtökin ‘78 lýsa þess vegna yfir eindreginni andstöðu sinni við frumvarpið.

 Við munum í framhaldinu skrifa umsögn um frumvarpið og hvetjum önnur félagasamtök og einstaklinga til þess að gera slíkt hið sama.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt