fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Réttindi íslenskra ríkisborgara tryggð eftir Brexit

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 8. febrúar 2019 11:55

Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Brussel, áritar samninginn fyrir Íslands hönd. Mynd-Utanríkisráðuneytið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur. Hafa drög samningsins nú verið birt.

„Með þessum samningi EFTA-ríkjanna innan EES og Bretlands eru íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru í Bretlandi og Bretum búsettum á Íslandi fyrir útgöngudag tryggð réttindi til áframhaldandi búsetu gangi Bretland úr ESB án samnings,“

segir í tilkynningu.

Undir lok nýliðins árs lauk samningaviðræðum EFTA-ríkjanna innan EES við Bretland vegna útgönguskilmála Bretlands úr ESB og Evrópska efnahagssvæðinu. Sá  samningur verður eingöngu undirritaður ef útgöngusamningurinn milli Bretlands og ESB verður samþykktur og tekur gildi.

Nú hafa því verið tryggð áframhaldandi búseturéttindi óháð niðurstöðu viðræðna milli Bretlands og ESB.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, fagnaði því að samkomulag væri í höfn:

„Íslensk stjórnvöld hafa undirbúið sig fyrir mismunandi sviðsmyndir meðal annars þann möguleika að Bretland gangi úr ESB án samnings. Þetta er mikilvægur áfangi í þeirri vinnu sem tryggir réttindi íslenskra og breskra ríkisborgara óháð því hvort viðræðum Bretlands og ESB ljúki með samningi þeirra á milli.“

 

Nánari upplýsingar er að finna á síðu um borgararéttindi vegna Brexit.

Bresk stjórnvöld hafa birt tilkynningu um málið, auk nánari skýringa á samningsdrögunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins