fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Ísland tekur við stjórn Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 7. febrúar 2019 09:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ísland hefur tekið við stjórn Nordplus menntaáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar næstu þrjú árin. Rannís mun sjá um rekstur aðalskrifstofunnar fyrir Nordplus áætlunina þann tíma sem Ísland heldur um stjórnartaumana, en Rannís hefur rekið landskrifstofu Nordplus á Íslandi frá 2013. Í rekstri aðalskrifstofunnar felst samræming á starfi landskrifstofa á Norðurlöndunum fimm, sem skipta með sér verkum við undirbúning úthlutana, auk starfs sem unnið er af tengiliðum í Eystrasaltsríkjunum, Grænlandi, Færeyjum og Álandi.

Eva Einarsdóttir

Í kjölfarið hefur Andrés Pétursson verið ráðinn stjórnandi Nordplus og Eva Einarsdóttir kynningarstjóri áætlunarinnar. Andrés Pétursson lauk B.A. prófi í fjölmiðlafræði og sögu frá Simon Fraser University í Vancouver og síðar M.A. prófi í Evrópufræðum frá London School of Economics. Hann hefur verið starfsmaður Rannís síðan 2013, með víðtæka reynslu af alþjóðlegu samstarfi og hefur undanfarin ár séð um skólahluta Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlunar Evrópusambandsins, á Íslandi. Eva er með meistaragráðu í stjórnunar- og viðskiptafræði (MBA) frá HR, gráðu í alþjóðlegri verkefnastjórnun frá Gautaborg og gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði frá Gautaborg. Hún hefur fjölbreytta reynslu af menntamálum, æskulýðs- og íþróttastarfi, af norrænu og evrópsku samstarfi, auk reynslu af kynningarstarfi, skipulagningu viðburða og vefumsjón.

Á hverju ári veitir Nordplus styrki fyrir rúmlega 9 milljónir evra til fjölbreyttra menntaverkefna. Ísland hefur tekið virkan þátt í þessu samstarfi frá upphafi og hafa hátt í fimm þúsund Íslendingar fengið styrki úr þessari áætlun á þeim tíma. Samstarfið er því mjög mikilvægt fyrir íslenskt menntasamfélag og er þetta því jákvætt skref til að auka veg og vanda Nordplus á Íslandi enn frekar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“