Eins og kom fram í frétt fyrr í dag hefur málverk af hjónunum Jóni Baldvin Hannibalssyni og Bryndísi Schram sem hékk á vegg í matsal Mennaskólans á Ísafirði verið tekið niður að beiðni nemanda sem þótti nærvera þess óþægileg. Nemandinn sem kvartaði undan málverkinu er í Femínistafélagi MÍ.
Af þessu tilefni vekur Hannes Hólmsteinn Gissurarson athygli á brjóstmynd af Brynjólfi Bjarnasyni sem er fyrir framan hátíðarsal Háskóla Íslands. Hannes skrifar þessa athugasemd:
Fyrir framan hátíðasal Háskóla Íslands er brjóstmynd af Brynjólfi Bjarnasyni, fyrsta og eina formanni Kommúnistaflokks Íslands. Hann var alla ævi harður stalínisti. Á tuttugustu öld kostaði kommúnisminn 100 milljón mannslíf. Hvað ber að gera?