fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Eyjan

Fær tæpar 15 milljónir fyrir hugmyndina að pálmatrjánum – Ljósastaur mun kosta 12,5 milljónir

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 30. janúar 2019 15:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg vegna kostnaðar við listaverkið Pálmar eftir Karin Sander, sem rísa á í nýju hverfi Vogabyggðar, kemur fram að bæði trén kosti alls 1,5 milljón króna, en hvort gróðurhús um sig kosti um 43 milljónir króna. Alls nemur kostnaður um 133 milljónum þegar allt er talið, en áætlunin upp á 140 milljónirnar var gerð árið 2015, en gengið hefur lækkað síðan.

Vitnað er í Ólöfu K. Sigurðardóttur, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, sem segir við Vísi að listakonan Karin Sander muni fá greiddar rúmar 14.8 milljónir fyrir höfundarverkið:

„Verkið sem varð fyrir valinu er mjög djarft og skemmtilegt enda er listakonan þekkt fyrir slík verk. Það er fráleitt að verið sé að borga 140 milljónir króna fyrir trén sem slík. Þau munu ekki kosta nema brot af upphæðinni, heldur er verið að greiða fyrir höfundarverkið og gróðurhúsin sem eru hluti af verkinu,“

Þá kemur fram að tekjur borgarinnar af uppbyggingunni í Vogabyggð muni greiða kostnaðinn við útilistaverkið og aðra innviði. Áætlað er að borgin fái tæpa sex milljarða í byggingarréttar- og gatnagerðargjöld.

Þá er tekið fram að dómnefndin sem valdi listaverk Karin Sander, hafi einnig lagt til að Reykjavíkurborg festi kaup á tillögu danska listamannahópsins A Kassen, er nefnist Endalausi ljósastaurinn.

Verður hann 30 metra hár og mun kosta 12,5 milljónir.

 

Tilkynning Reykjavíkurborgar

Útilistaverk hluti af heildarhönnun Vogabyggðar

Í Vogabyggð, þar sem listaverkið Pálmar mun prýða torg, geta risið um 1.300 íbúðir í fyrstu þremur áföngum uppbyggingarinnar. Tekjur borgarinnar af uppbyggingunni greiða kostnað við innviði þar með talið valin útilistaverk sem eru aðeins brot af heildarkostnaðinum eða um 1%.

Alls er áætlað að Reykjavíkurborg fái tæpa sex milljarða í byggingarréttar- og gatnagerðargjöld vegna uppbyggingarinnar og verða þær tekjur notaðar til að fjármagna alla innviði hverfisins eins og götur, lagnir, torg, lýsingu, gróður, skóla, leikskóla – og listaverk sem lóðarhafar greiða að jöfnum hluta á móti Reykjavíkurborg samkvæmt samningum.

Í samþykktum samningsmarkmiðum borgarinnar á nýbyggingarsvæðum er ákvæði um að list í almenningsrýmum skuli fjármögnuð af lóðarhöfum. Er samið við hvern og einn lóðarhafa hversu hátt hlutfall þeir greiði til slíkra verka, aldrei minna en 50% og er fjármagnið eyrnamerkt listaverkum á svæðinu. Í því samhengi var Listasafni Reykjavíkur falið að halda alþjóðlega samkeppni um listaverk í Vogabyggð.

Árið 2019 er ár listar í almenningsrými hjá Listasafni Reykjavíkur sem mun vekja sérstaka athygli á slíkri list á árinu.

Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, kveðst fagna allri umræðu um list í almenningsrýmum.

„Verkið sem varð fyrir valinu er mjög djarft og skemmtilegt enda er listakonan þekkt fyrir slík verk. Það er fráleitt að verið sé að borga 140 milljónir króna fyrir trén sem slík. Þau munu ekki kosta nema brot af upphæðinni, heldur er verið að greiða fyrir höfundarverkið og gróðurhúsin sem eru hluti af verkinu,“ segir Ólöf.

Ólöf segir að í lýsingu listakonunnar Karin Sander segi að íbúar geti haft áhrif á verkið og lagt til annan framandi gróður í gróðurhúsin þegar fram líða stundir, t.d. kirsuberjatré eða aðrar jurtir. Þá hafi dómnefndin rætt við sérfræðinga varðandi pálmatrén sem segja að vel sé mögulegt að halda í þeim lífi í slíku vistkerfi og framkvæmdin því öll gerleg.

Í lokaðan hluta samkeppninnar bárust 13 gildar tillögur að útilistaverkum og eru allar tillögurnar til sýnis á Kjarvalsstöðum til 7. febrúar næstkomandi.

Í kostnaðaráætlun fyrir verkið Pálmatrén er gert ráð fyrir að tvö pálmatré kosti um 1,5 milljón en hvort gróðurhús um 43 milljónir króna.

Dómnefndin lagði til að Reykjavíkurborg festi kaup á tillögu danska listamannahópsins A Kassen sem kallast Endalausi ljósastaurinn en hann verður 30 metra hár. Gert er ráð fyrir að hann kosti 12,5 milljónir króna uppsettur.

Vogabyggð verður talsvert stórt hverfi sem mun skapa borginni miklar framtíðartekjur. Jafnframt eru skilmálar um að 20% íbúða verði leiguíbúðir, stúdenta eða búseturéttaríbúðir og 5% íbúða verði félagslegar leiguíbúðir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Grenjað á gresjunni

Svarthöfði skrifar: Grenjað á gresjunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna

Snorri Jakobsson: Galið að Seðlabankinn hækki vexti og auki með því verðbólguna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?

Björn Jón skrifar: Forsetaefni íhaldsmanna?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér

Snorri Jakobsson: Seðlabankinn eins og hundur sem eltir skottið á sér