fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Kerfisáætlun Landsnets samþykkt

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 23. janúar 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orkustofnun tók þann 18.1.2019 ákvörðun um að samþykkja kerfisáætlun Landsnets fyrir tímabilið 2018-2027. Með breytingu á raforkulögum á árinu 2015 fékk Orkustofnun nýtt hlutverk sem felst í eftirliti með uppbyggingu flutningskerfisins í gegnum kerfisáætlun Landsnets. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Landsnet skal árlega leggja fram kerfisáætlun til samþykktar hjá Orkustofnun sem felur í sér tvo megin þætti:

• Langtímaáætlun sem sýnir þá hluta í meginflutningskerfinu sem fyrirhugað er að byggja upp eða uppfæra á næstu tíu  árum.

• Framkvæmdaáætlun sem sýnir áætlaðar fjárfestingar í flutningskerfinu sem Landnet hyggst ráðast í á næstu þremur árum.

Samkvæmt raforkulögum hefur Orkustofnun það hlutverk að fara yfir og meta kerfisáætlun Landsnets með hliðsjón af markmiðum raforkulaga um öryggi, skilvirkni, áreiðanleika afhendingar, hagkvæmni, gæði raforku og stefnu stjórnvalda um lagningu raflína. Mat Orkustofnunar á framkvæmdum á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar kemur í stað leyfisveitinga stofnunarinnar fyrir einstökum framkvæmdum. Þannig felur samþykki Orkustofnunar á kerfisáætlun í sér ígildi leyfis fyrir framkvæmdum á framkvæmdaáætlun flutningsfyrirtækisins.

Orkustofnun fékk kerfisáætlun 2018 – 2027 frá Landsneti til formlegrar meðferðar þann 31. ágúst 2018. Þann 22. nóvember 2018 gerði stofnunin athugasemdir við framlagða kerfisáætlun Landsnets og óskaði eftir breytingum á áætluninni.
Landsnet skilaði Orkustofnun endanlegri uppfærðri kerfisáætlun með breytingum þann 21. desember 2018.

Orkustofnun hefur nú yfirfarið þær breytingar sem Landsnet hefur gert á kerfisáætlun fyrirtækisins og er það mat stofnunarinnar að að áætlunin uppfylli skilyrði raforkulaga nr. 65/2003 og reglugerðar nr. 870/2016 um kerfisáætlun fyrir uppbyggingu flutningskerfis raforku.

Það er því niðurstaða Orkustofnunar að samþykkja kerfisáætlun Landsnets 2018-2027. Ákvörðunin er kæranleg til úrskurðarnefndar raforkumála.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn