Grunnlaun borgarfulltrúa í Reykjavík voru hækkuð tæpar 16 þúsund krónur í janúar, úr 726 þúsundum í 742 þúsund. Þá var fastur starfskostnaður hækkaður um rúmar ellefuhundruð krónur, úr 52, 486 krónum í 53,613 krónur. Bréf þessa efnis var lagt fram á fundi forsætisnefndar síðastliðinn föstudag frá skrifstofu borgarstjórnar.
Borgarfulltrúar fá því tæpar 796 þúsund krónur alls á mánuði, fyrir skatt.
Alls hafa laun borgarfulltrúa því hækkað um rúmar 148 þúsund krónur frá því í apríl 2017, þegar ákveðið var í borgarstjórn að binda laun kjörinna fulltrúa við þróun launavísitölu. Árið áður hafði kjararáð hækkað laun borgarfulltrúa um rúm 44 prósent, sem skapaði nokkra úlfúð í samfélaginu og ákvað borgarstjórn að frysta launin til að byrja með og loks aftengja sig kjararáði.
Fyrir þá hækkun voru grunnlaun borgarfulltrúa 593,720 krónur á mánuði. Með hækkun kjararáðs hefðu grunnlaun orðið 856,949 krónur.
Grunnlaunin eru nú 742 þúsund, en ofan á kemur ýmis starfskostnaður og álagsgreiðslur sem getur numið hundruðum þúsunda. Til dæmis fá þeir borgarfulltrúar sem sitja í borgarráði greitt álag sem nemur fjórðungi af grunnlaunum. Fær formaður borgarráðs 40% álag.
Þá fá þeir borgarfulltrúar sem sitja í þremur eða fleiri fastanefndum einnig fjórðungsálag ofan á grunnlaunin, en borgarfulltrúum var fjölgað úr 15 í 23 í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Grunnlaun borgarfulltrúa eru uppfærð tvisvar á ári, í janúar og júlí ár hvert, samkvæmt þróun launavísitölu.