fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Magnús Már Guðmundsson nýr framkvæmdastjóri BSRB

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 10. janúar 2019 08:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Már Guðmundsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri BSRB. Hann tekur við starfinu af Helgu Jónsdóttur, sem lét af störfum um áramótin. Magnús hefur verið borgarfulltrúi og varaborgarfulltrúi frá árinu 2014 en mun óska eftir leyfi frá störfum á fundi borgarstjórnar í næstu viku.

„Það eru spennandi tímar hjá BSRB eins og annars staðar í verkalýðshreyfingunni og ég hlakka til að starfa með öflugu fólki innan bandalagsins og í aðildarfélögum þess,“ segir Magnús Már. „Barátta verkalýðsfélaga er barátta fyrir bættu samfélagi sem rímar vel við þær hugsjónir sem ég hef beitt mér fyrir á öðrum vettvangi á undanförnum árum.“

Magnús er með B.A. próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands með stjórnmálafræði sem aukagrein. Hann er með kennsluréttindi sem grunn- og framhaldsskólakennari og hóf nýlega meistaranám í opinberri stjórnsýslu. Magnús starfaði með fötluðum börnum og ungmennum hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar með námi á árunum 2002 til 2008.

Hann var fréttamaður á fréttastofu Vísis.is og Bylgjunnar að námi loknu en hóf störf sem kennari í Menntaskólanum í Kópavogi árið 2011. Hann var kjörinn varaborgarfulltrúi í Reykjavíkurborg árið 2014, varð tímabundið borgarfulltrúi árið 2016, en hefur verið varaborgarfulltrúi aftur frá árinu 2017.

„Það er mikill fengur fyrir okkur hjá BSRB að fá Magnús Má til liðs við okkur,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. „Magnús kemur með mikla reynslu með sér til starfa, til að mynda hefur hann stýrt tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar hjá Reykjavíkurborg síðustu árin og þekkir því vel til þessa stóra stefnumáls bandalagsins.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki