Forsætisráðuneytið íhugar að efna til fræðslu sem er ætlað að hvetja fullorðið fólk til að fara fyrr að sofa. Þetta kemur fram í greinargerðinni „Staðartími á Íslandi – stöðumat og tillögur“ hefur verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Greinargerðin var unnin í forsætisráðuneytinu og í henni er skoðað hvort færa eigi staðartíma nær sólartíma miðað við hnattræna legu landsins. Segir á vef Stjórnarráðsins að rannsóknir sýni að nætursvefn Íslendinga sé almennt séð of stuttur en slíkt geti verið heilsuspillandi og haft áhrif á námsárangur og framleiðni í atvinnulífinu. Sérstaklega er þetta áhyggjuefni vegna barna og ungmenna. Segir í greinargerðinni að líkleg skýring sé að klukkan sé ekki í samræmi við hnattræna legu landsins.
Almenningi, atvinnulífi og stjórnsýslu er boðið að taka þátt í samráði og leggja fram sín sjónarmið um stöðumat, framtíðarsýn og áhrif mögulegra breytinga. Í kjölfarið verður svo unnið úr ábendingum og stefna mótuð af hálfu stjórnvalda.
Settir eru fram eftirfarandi valkostir í greinargerðinni:
A. Óbreytt staða, klukkan er áfram 1 klst. fljótari en ef miðað væri við hnattstöðu, en með fræðslu er fólk hvatt til að ganga fyrr til náða.
B. Klukkunni seinkað um 1 klst. frá því sem nú er, í samræmi við hnattstöðu landsins (dæmi: kl. 11:00 nú, verður kl. 10:00 eftir breytingu).
C. Klukkan áfram óbreytt en skólar og jafnvel fyrirtæki og stofnanir hefja starfsemi seinna á morgnana.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, grípur tillögu A á lofti á Twitter og segir:
Ríkið er að velta fyrir sér þeim möguleika að ráðast í fræðsluátak til að hvetja fólk til að fara fyrr að sofa. Fullorðnu fólki. pic.twitter.com/7PyRFfz1W6
— Þórður S. Júlíusson (@thordursnaer) January 10, 2019
Fanney Birna Jónsdóttir, stjórnandi Silfursins á RÚV, bætir við og segir:
„Get ekki hætt að velta því upp hvernig líf mitt væri ef mér hefði bara dottið þetta í hug fyrr á lífsleiðinni.“