Samkvæmt árlegri samanburðarrannsókn um efnahagsfrelsi ríkja í heiminum, mælist það mest í Hong Kong og Singapúr. Ísland er í 59. sæti listans, ásamt Ungverjalandi, og stendur í stað milli ára þó svo einkunnin lækki örlítið. Viðskiptablaðið greinir frá.
Skoðað er hversu fyrirferðamikið ríkisvaldið er í efnahagslífi hvers lands fyrir sig, varðandi útgjöld, skatta og ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki. Þá er gjaldmiðillinn, lagaumgjörð og staða eignarrétts skoðuð, sem og reglugerðarumgjörð landanna.
Einkunn Íslands lækkar úr 7,25 stigum árið 2015 í 7,22 stig, en skýrslan tekur mið af opinberum tölum frá árinu 2016.
Árið 2007 var Ísland í 11. sæti listans. Árið 2010 hrundi það í 102. sætið, og árið 2015 var það komið í 64. sæti.
Nágrannar Íslands á listanum eru Kenía, einu sæti neðar, og Seychelles-eyjar sem eru sæti ofar. Þar fyrir ofan er Frakkland og Pólland.
Í fimm neðstu sætum listans eru Sýrland, Alsír, Argentína, Líbía og neðst er Venesúela.
Topp 10 listinn lítur svona út:
Hong Kong – 8,97
Singapúr – 8,84
Nýja Sjáland – 8,49
Sviss – 8,39
Írland – 8,07
Bandaríkin – 8,03
Georgía – 8,02
Máritíus – 8,01
Bretland – 8,0
Ástralía – 7,98