fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Átta ungmenni frá Íslandi keppa á EuroSkills í Búdapest

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 26. september 2018 13:45

Jón Þór Einarsson rafvirki, Finnur Ingi Harrýsson málmiðnaðarmaður, Þórey,Lovísa Sigurmundsdóttir bakari, Sigurður Borgar Ólafsson framreiðslumaður, Kristinn Gísli Jónsson matreiðslumaður, Þröstur Kárason trésmiður, Haraldur Örn Arnarson prentsmiður og Ásbjörn Eðvaldsson rafeindavirki.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dagana 26. – 28. september 2018 fara átta keppendur frá Íslandi til Búdapest í Ungverjalandi til að keppa á EuroSkills – evrópukeppni iðn- og verkgreina. Íslensku keppendurnir eru í trésmíði, grafískri miðlun, málmsuðu, rafvirkjun, rafeindavirkjun, bakstri, framreiðslu og matreiðslu. Undirbúningur hefur staðið yfir síðan í vor og nú er komið að keppninni. Keppendurnir voru valdir af hverri grein til að keppa fyrir Íslands hönd og hafa verið undir handleiðslu þjálfara sem fer með þeim á mótið.

Verkiðn – Skills Iceland er aðili að EuroSkills og hefur verið þátttakandi á vettvangi samtakanna og systursamtakanna WorldSkills frá árinu 2007. Í ár er fjöldi þátttakenda sá mesti sem farið hefur á EuroSkills og ríkir mikil eftirvænting í hópnum.

Dýrmæt reynsla að byggja á

„Á EuroSkills eru nemar í iðnnámi að koma fram fyrir Íslands hönd og keppa í sínum iðngreinum. Keppendum gefst þarna einstakt tækifæri til að bera sig saman við kollega sína um alla Evrópu og kynnast því að standa á stóra sviðinu. Markmiðið er ekki endilega að koma heim með verðlaunapening heldur mikið frekar að vera sér og sinni iðngrein til sóma. Koma heim með dýrmæta reynslu í farteskinu til að ná enn lengra í faginu,“

segir Georg Páll Skúlason, formaður Verkiðnar.

 

Fylgstu með íslensku keppendunum

Hægt verður að fylgjast með íslensku keppendunum á Facebook- og Instagramsíðum Verkiðnar:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki