fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Álagning veiðigjalds færð nær í tíma

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 25. september 2018 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um veiðigjald. Meginmarkmið frumvarpsins er „að færa álagningu veiðigjalds nær í tíma þannig að gjaldtakan sé meira í takt við afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og að stjórnsýsla með álagningu veiðigjalds verði einfaldari, skilvirkari, gegnsærri og áreiðanlegri. Þá er gjaldhlutfall veiðigjalds óbreytt frá gildandi lögum,“

segir í tilkynningu.

Helstu breytingar sem frumvarpið kveður á um eru eftirfarandi:

Annmarkar á álagningu veiðigjalds lagaðir

Útreikningar færðir nær í tíma og veiðigjald ákveðið fyrir almanaksár. Ákvörðun veiðigjalds verður þannig byggð á árs gömlum gögnum um afkomu sjávarútvegsfyrirtækja í stað um tveggja ára líkt og nú er.

Stjórnsýsla einfölduð og bætt

Útreikningur veiðigjalds og álagning fært til Ríkisskattstjóra og veiðigjaldanefnd lögð niður. RSK getur nýtt villuprófun í skattframtölum og sannreynt með öðrum leiðum þau gögn sem aðilar skila til RSK. Þá mun RSK árita allar upplýsingar í greinargerð með skattframtali sem rekstraraðilar í sjávarútvegi skila þegar hún er opnuð og auðvelda þannig eigendum fiskiskipa þessi skil.

Með því að færa úrvinnslu reiknistofns veiðigjalds til RSK, byggða á rekstrarupplýsingum sem sjávarútvegsfyrirtæki skila inn samhliða skattframtali, verða ákvarðanir veiðigjaldsins byggðar á haldbærari gögnum og upplýsingum en hagtölur Hagstofu veita og hægt er að færa ákvörðun gjaldsins nær innheimtu þess. Þannig verður reiknistofn veiðigjalds gegnsærri og auðskiljanlegri en reiknistofn gildandi laga.

Veiðigjald eingöngu lagt á veiðar

Í frumvarpinu er lögð til sú breyting að hagnaður fiskvinnslu komi ekki til útreiknings veiðigjalds líkt og nú er. Núverandi fyrirkomulag hefur verið gagnrýnt, m.a. hefur verið bent á í þessu samhengi að fiskvinnsla sé ekki hluti af auðlindanýtingu.

Útreikningur aflaverðmætis frystiskipa vegna vinnsluþáttar einfaldaður.

Dregið úr flækjustigi veiðigjalds

Veiðigjald á lítið veiddar tegunda einfaldað og tegundir utan aflamarks undanskildar veiðigjaldi (að undanskildum makríl). Nytjastofnar sem ekki eru í aflamarki veiðast oftast sem meðafli og aðeins í litlum mæli. Af þeim sökum er erfitt að meta sérstaklega raunverulega afkomu af veiðum þeirra og útreikningar á gjaldstofni þeirra oftar en ekki fjarska fjarri raunveruleikanum. Þá getur gjaldtaka á þessar tegundir dregið að nauðsynjalausu úr sókn og aukið hættu á brottkasti. Um er að ræða litlar fjárhæðir í heildarsamhengi veiðigjalds.

Fjárfestingar í sjávarútvegi

Tekið verður tillit til fjárfestinga í sjávarútvegi við útreikning á gjaldstofni veiðigjalds enda felast sameiginlegir hagsmunir ríkisins og útgerðar til langframa í öflugum fjárfestingum.

Minni sveiflur á álagningu veiðigjalds

Þær breytingar sem gerðar eru á forsendum veiðigjaldsins leiða til þess að minni sveiflur verða á álagningu veiðigjalds, en það hefur verið ein helsta gagnrýnin á núverandi álagningu. Þannig verður meira samræmi á milli annars vegar afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og hins vegar fjárhæðar veiðigjalds á hverjum tíma.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki