fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Kolbrún segir Svandísi „framfylgja stefnu flokks sem hefur alltaf haft vissa andúð á einkaframtaki þar sem hætta er á að einstaklingar geti hagnast“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 20. september 2018 10:21

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kolbrún Bergþórsdóttir leggst á sveif með Sjálfstæðisflokknum varðandi rekstrarform heilbrigðiskerfisins í leiðara Fréttablaðsins í dag, hvar hún gagnrýnir Svandísi Svavarsdóttur og Vinstri græna fyrir stefnu sína í þeim málaflokki. Hún spyr hvernig hægt sé að reka fyrirtæki án hagnaðarsjónarmiða og nefnir að VG hafi andúð á einkaframtaki, þar sem hætta er á að einstaklingar hagnist.

Kolbrún gengur fram fyrir skjöldu og ver grein þriggja Sjálfstæðismanna, sem þingmaður VG sagði vera „tuddalega“, en Kolbrún telur hana hógværa:

„Á dögunum skrifuðu þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins grein, vitanlega í málgagn sitt Morgunblaðið, þar sem þeir vöruðu við því að lagður yrði steinn í götu einkareksturs í heilbrigðiskerfinu. Tilefnið er ærið því slíkt er einmitt kappsmál hjá heilbrigðisráðherra Svandísi Svavarsdóttur og ekki kemur á óvart að þar nýtur hún stuðnings samflokksmanna sinna. Ljóst er að þessi skrif gerðu enga lukku hjá Vinstri grænum, sérstaklega ekki hjá Rósu Björk Brynjólfsdóttur, sem sagði skrifin einkennast af tuddalegu orðalagi.

Tuddalegt orðalag er ekki áberandi í skrifum þingmannanna þriggja, þeirra Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, Jóns Gunnarssonar og Brynjars Níelssonar. Reyndar er þetta hin kurteislegasta grein. Það má jafnvel segja að hún hafi einkennst af hógværð í orðalagi, sérstaklega ef haft er í huga að einn greinarhöfunda hefur einstakt lag á að orða skoðanir sínar á svo kröftugan hátt að pólitískir andstæðingar komast í mikið uppnám og eru dágóðan tíma að jafna sig.“

Kolbrún segir að innan VG sé litið á grein Sjálfstæðismannanna sem ögrun, sem ekki verði til þess að bæta stjórnarsamstarfið. En það sé svosem í lagi, því þjóðin þurfi ekkert sérstaklega á ríkisstjórninni að halda.

Gamaldags vinstri flokkur

Þá segir Kolbrún að ekki komi á óvart hver stefna VG sé í garð einkaframtaksins:

„Það er ljóst að heilbrigðisráðherra hefur horn í síðu einkareksturs í heilbrigðiskerfinu. Ráðherrann er einfaldlega að framfylgja stefnu flokks sem hefur alltaf haft vissa andúð á einkaframtaki þar sem hætta er á að einstaklingar geti hagnast.

Það hefur aldrei verið fallið til velþóknunar innan Vinstri grænna að menn hagnist á starfsemi sinni, hversu vel meinandi sem þeir annars eru. Það eru því ekki óvænt tíðindi að þingmenn Vinstri grænna ætla að leggja fram frumvarp sem tryggir að ríkið semji ekki við fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hafa hagnað í huga. Einhver kann að spyrja hvernig hægt sé að reka fyrirtæki eða vera í starfsemi án þess að huga að hagnaði, reksturinn hlýtur að verða að bera sig. Vinstri græn spyrja þó ekki slíkra spurninga, enda gamaldags vinstri flokkur þar sem hagnaður er litinn hornauga.“

 

Rými fyrir einkarekstur

Kolbrún segir að ekki eigi að hindra einkarekstur í heilbrigðisþjónustu:

„Vitanlega er það lykilatriði í velferðarsamfélagi að tryggja trausta heilbrigðisþjónustu fyrir alla, óháð fjárhag þeirra. Þar þurfa opinberi geirinn og sá einkarekni að vinna saman með hag sjúklinga að leiðarljósi. Það er ekkert vit í öðru en að gott rými sé fyrir einkarekstur í heilbrigðisþjónustu og það á ekki að hindra hann, eins og virðist vera stefna Vinstri grænna, heldur búa honum ramma. Það er ólíðandi að sjúklingar þurfi að þola það að lenda á löngum biðlistum. Furðulegt er að sjúklingar fari í aðgerðir erlendis þegar vel mætti framkvæma þær á einkareknum stofum hér á landi. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa ekki alltaf lög að mæla. Blessunarlega koma þó þær stundir að þeim ratast satt á munn. Þingmennirnir sem tjáðu sig í Morgunblaðinu eru á bandi skynseminnar þegar kemur að áherslum í heilbrigðiskerfinu. Það er gott. Verra er að vonlítið er að Vinstri græn láti sér segjast.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt