fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Háskólagarðar HR rísa við Öskjuhlið

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 20. september 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýir Háskólagarðar Háskólans í Reykjavík munu brátt rísa við Öskjuhlíðina, í næsta nágrenni við háskólann. Eygló M. Björnsdóttir, formaður Stúdentafélags HR, Ari Kristinn Jónsson, rektor HR,  Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra tóku fyrstu skóflustunguna að fyrsta áfanga Háskólagarðanna í gær, miðvikudaginn 19. september. Reiknað er með að framkvæmdir hefjist á næstu vikum, samkvæmt tilkynningu.

Í þessum fyrsta áfanga Háskólagarðanna, sem er tæpir 5.900 fermetrar á 4-5 hæðum, verða 125 íbúðir til útleigu. Baðherbergi og eldunaraðstaða verður í öllum íbúðum en þvottarými og önnur slík aðstaða verður sameiginleg. Áætlað er að hægt verði að taka íbúðirnar í notkun haustið 2020. Heildarkostnaður er áætlaður um 2,6 milljarðar króna.

Eygló M. Björnsdóttir, formaður Stúdentafélags HR, sagði við skóflustunguna „Bygging háskólagarðanna hefur verið baráttumál stúdenta í HR í nokkurn tíma og það er gaman að sitja í stjórn stúdentafélagsins þegar það er loksins komið að þessu. Ég er mjög ánægð með þennan frábæra árangur, að fara frá þarfagreiningu nemenda árið 2014 í skóflustungu að Háskólagörðunum.“

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, segir að með byggingu Háskólagarða sé stigið stórt skref til að bæta enn frekar þá þjónustu sem HR veitir nemendum sínum.  „Við vitum hversu erfitt það getur verið fyrir nemendur að finna íbúðarhúsnæði við hæfi og á hagkvæmum kjörum. Með Háskólagörðum HR bjóðum við nemendum glænýtt húsnæði á besta stað og á lægsta leiguverði sem hægt er að bjóða, enda Háskólagarðar ekki reknir í hagnaðarskyni.“  Ari segir að nemendur HR eigi stóran þátt í að komið sé að þessum tímamótum. „Nemendur hafa unnið með okkur í ferlinu, allt frá fyrstu hugmyndum til þarfagreiningar og útfærslu. Þetta eru þeirra Háskólagarðar.“

Í nýju deiliskipulagi á lóð HR við Öskjuhlíð er gert ráð fyrir byggingu samtals 390 íbúða. Þetta eru allt frá litlum einstaklingsíbúðum, um 25 fermetrar að stærð, upp í um 80 fermetra þriggja herbergja íbúðir. Nokkrar íbúðanna munu einnig nýtast til leigu og tímabundinnar búsetu fyrir starfsfólk HR og starfsfólk fyrirtækja sem starfa innan HR og önnur þekkingarfyrirtæki sem tengjast háskólanum. Auk íbúða verður þjónustukjarni með fjölbreyttri þjónustu syðst á svæðinu, næst HR. Uppbyggingin mun fara fram í fjórum áföngum.

Það eru Kanon arkitektar sem hanna byggingarnar og verktaki er Jáverk. Í gær var einnig skrifað undir samninga um framkvæmdir og fjármögnun fyrsta áfanga Háskólagarðanna við Jáverk og Landsbankann.

 

Stúdentagarðar HR við Öskjuhlíð

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“